BL frumsýnir Renault Megane á morgun Finnur Thorlacius skrifar 21. mars 2014 10:45 Renault Megane.
Nýr Renault Megan verður frumsýndur milli kl. 12 og 16 laugardaginn 22. mars í BL að Sævarhöfða 2 en Renault Megane hefur slegið í gegn sem sparneytinn bíll enda notar hann aðeins frá 3,5 l/100 km í blönduðum akstri og losar jafnframt aðeins 90 g/km af CO2. Þetta þýðir meðal annars að hægt er að aka rúmlega 1700 kílómetra á einni tankfylli á Renault Megane en það er miklu meira en nóg til að aka hringveginn sem er 1332 km, án þess að taka eldsneyti. Sjálfskiptur Renault Megan með sparneytinni dísilvél kostar kr. 3.590.000 og er eldsneytisnotkun þeirrar gerðar 4,2 lítrar á hundraðið í blönduðum akstri. Renault Megane Sport Tourer er skutbílsgerðin af Megane og kostar sú gerð kr. 3.890.000 en báðir bílarnir eru ríkulega búnir af staðalbúnaði eins og EBD neyðarhemlun, tölvustýrðri miðstöð með loftkælingu, Bluetooth handfrjálsum símabúnað og start/stop ræsibúnað í beinskiptu útgáfu bílsins. Þá eru tengi fyrir tónhlöður í hljómflutningstækjum bílsins og ýmiskonar lúxusbúnaður eins og leðurklætt aðgerðarstýri. Bíllinn verður sem áður segir frumsýndur á morgun, laugardag, á milli kl. 12 og 16 og verður hægt að reynsluaka bílnum og fá sér kaffibolla.
Mest lesið Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita samþykki Innlent Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Innlent Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Innlent Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Innlent Ísland.is ekki fullnægjandi sem þjónustuvefur Innlent Hundrað ár frá því útvarpið varð að veruleika á Íslandi Innlent Ógnaði hópi ungmenna með eggvopni Innlent