Þessi eina braut er Ehra-Lessien brautin í Þýskalandi, stærsta og flottasta bílaprófunarbraut í heimi. Hún er staðsett rétt við gömlu landamæri A-Þýskalands og er 96 km löng og byggð árið 1965. Flugbann er yfir brautinni til að ekki komi til þess að nokkur geti myndað það sem þar fer fram.
Til þess að fá skráð hraðaheimsmet þarf bíll að fara tvær ferði, fram og til baka, og meðaltal hámarkshraðans úr báðum ferðum er hinn skráði tími. Þetta gerði Bugatti bíllinn er hann náði hraðaheimsmetinu.
Um daginn náði Hennessy Venom GT 435 km hraða á flugbrautinni sem NASA notar fyrir lendingar á geimskutlum sínum. Ekki fékkst leyfi NASA til að fara aðra ferð til baka og því ekkert heimsmet sett fyrir vikið.
Ekki finnst betri og lengri braut en þessi og því harla ólíklegt að nokkur bíll á næstunni nái heimsmetinu af Bugatti bílnum, nema Volkswagen leyfi akstur slíks bíls á sinni braut. Volkswagen hefur ekki áhuga á því að annar bíll en framleiddur af Volkswagen bílasamstæðunni nái heimsmetinu af þeim og því eiga aðrir bílaframleiðendur harla lítinn séns.
