
QuizUp á þýsku slær í gegn

Það er íslenska tölvufyrirtækið Plain Vanilla sem gefur út leikinn og er þetta í fyrsta sinn sem hann er gefinn út á öðru tungumáli en ensku. Stefna Plain Vanilla er að leikurinn verði aðgengilegur fyrir öll stærstu málsvæði heims. Meðal þess sem unnið er að í þeim efnum er útgáfa leiksins á kínversku og spænsku.
Plain Vanilla segir að þessi árangur þyki góður í ljósi þess að Þýskalandsmarkaður er þroskaður markaður og þarlendir leikjaframleiðendur hafa gefið út sína eigin spurningaleiki. Þýskumælandi notendur QuizUp geta svarað spurningum í leiknum á móðurmáli sínu og keppt við spilara um allan heim sem svara sömu spurningum á ensku. Enginn annar sambærilegur leikur býður upp á þennan möguleika.
„Við horfum á QuizUp ekki bara sem spurningaleik þó að það sé vissulega öngullinn sem dragi notendur inn. Við sjáum framtíð QuizUp ekki síst sem samfélagsmiðil sem myndast í kringum sameiginleg áhugamál fólks um allan heim. Heimurinn er orðinn svo lítill í dag og nýjar kynslóðir eiga heilmikið sameiginlegt hvort sem þær vaxa úr grasi í Hong Kong, New York, Berlín eða Reykjavík. Fólk vill deila þekkingu sinni eins og sést t.d. á Wikipedia og það vill eiga í samskiptum um áhugamál sín eins og sést á Twitter, Tumblr og að einhverju leyti Facebook. Við teljum að QuizUp, sem hefur þegar á annan tug milljóna notenda, geti virkjað þennan áhuga fólks á að tengjast og sinna áhugamálum sínum. Viðtökurnar sem QuizUp á þýsku hefur fengið á þessum örfáu fyrstu dögum eru virkilega ánægjulegar. Bæði er þetta stór markaður sem mikilvægt er að sinna vel og einnig er þetta staðfesting á því að ákvörðun okkar um að leggja áherslu á að þýða leikinn fyrir stór málsvæði hafi verið rétt. Möguleikinn á því að spila QuizUp á þínu móðurmáli gefur okkur mikið samkeppnisforskot og mun stuðla að enn frekari fjölgun QuizUp notenda,“ segir Þorsteinn Baldur Friðriksson, forstjóri og stofnandi Plain Vanilla í tilkynningunni.
QuizUp samfélagið hefur haldið áfram að vaxa jafnt og þétt eftir útgáfu leiksins á Android og bætast nú að jafnaði við 100 þúsund nýir spilarar á dag. 17,2 milljónir manna hafa nú hlaðið QuizUp niður í farsíma sína í 230 löndum. Sífellt er bætt við nýjum spurningaflokkum og eru þeir nú yfir 400 með alls 220.000 ólíkum spurningum.
Plain Vanilla flutti nýverið í nýtt húsnæði við Laugaveg 77 og hefur ráðið fjölmarga nýja starfsmenn til að takast á við þau verkefni sem fylgja svo hröðum vexti. Meðal þess sem hefur vakið athygli forsvarsmanna fyrirtækisins er mikil virkni notenda á spjallborðunum innan QuizUp. Vinnur Plain Vanilla nú að frekari útfærslu á því hvernig haldið verði utan um QuizUp samfélagið og hvernig fólk getur sameinast um áhugamál sín og átt samskipti sín á milli utan hefðbundinna viðureigna í leiknum.
Tengdar fréttir

Plain Vanilla hrósað fyrir nýsköpun
Fyrirtækið er í sjöunda sæti á lista yfir þau fyrirtæki sem sýna mesta nýsköpun í samfélagsmiðlum.

Prestar gera góða hluti í QuizUp
Tveir prestar eru á topp fimm lista QuizUp í spurningum tengdum Biblíunni.

Töluverð fríðindi fylgja starfi hjá Plain Vanilla
Meðal annars geta starfsmenn valið Apple vörur, fengið ókeypis líkamsræktarkort og kokkur frá Argentínu eldar hádegismat fjórum sinnum í viku.

Plain Vanilla flytur
„Við erum bara búin að sprengja utan af okkur húsnæðið og erum því að flytja í gamla húsnæði Landsbankans, VISA og Valitor á Laugavegi.“

Quiz Up vinsælast í 30 löndum
Spurningaleikurinn Quiz Up er eitt vinsælasta smáforrit heims um þessar mundir. Leikurinn er í þriðja sæti í flokki ókeypis smáforrita á Bandaríkjamarkaði. "Algjört ævintýri,“ segir forstjóri Plain Vanilla sem framleiðir leikinn. Þessi uppgangur leiksins er ævintýri líkast.

Plain Vanilla fjölgar starfsmönnum
Fyrirtækið Plain Vanilla, sem framleiðir QuizUp leikinn, auglýsir í blöðum í dag sjö laus störf. Störfin eru auglýst undir fyrirsögninni: Okkur vantar fleira fólk sem langar að sigra heiminn.

QuizUp með tvenn verðlaun
Nikitaclothing.com var valinn besti vefurinn á íslensku vefverðlaununum, sem afhent voru við hátíðlega athöfn í Gamla Bíói í dag.

Í sjötta sæti á App Store
Íslenski spurningaleikurinn QuizUp sem kom á markað í gær er einungis einu sæti á eftir Candy Crush á lista App Store í Bandaríkjunum, en þann leik þekkja margir Íslendingar.

Gunnar Hólmsteinn frá CLARA til Plain Vanilla
Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson hefur tekið við stöðu COO eða rekstrarstjóra hjá íslenska leikjaframleiðandanum Plain Vanilla.

Myndi ekki selja fyrir ellefu milljarða
Þorsteinn Friðriksson, framkvæmdastjóri Plain Vanilla, var í sjónvarpsviðtali á Fox í Bandaríkjunum.

Íslendingar til að kjósa QuizUp
Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi fyrirtækisins Plain Vanilla, segist á Facebook síðu sinni vera stoltur yfir tilkynningu QuizUp til hinna árlegu Crunchies verðlauna og biðlar til Íslendinga að kjósa spurningaleikinn.

240 milljón króna hlutafjáraukning hjá Plain Vanilla vegna QuizUp
Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Sequoia Capital leiðir nýja fjárfestingu upp á tvær milljónir dollara í tölvuleikjaframleiðandanum Plain Vanilla. Það gera um 240 milljónir íslenskra króna. Sequoia óskaði eftir þessu daginn áður en að leikurinn kom út.

QuizUp komið út á Android
Upprunalega stóð til að gefa leikinn, sem notið hefur gífurlega vinsælda, út á Android í janúar.

Vinsælustu iPhone leikirnir framleiddir á Norðurlöndum
Fimm vinsælustu iPhone leikirnir í Bandaríkjunum eru framleiddir á Norðurlöndum. Sá vinsælasti er framleiddur á Íslandi.

Ótrúlegar viðtökur QuizUp í Bandaríkjunum
QuizUp er nú í þriðja sæti yfir vinsælustu öpp í Bandaríkjunum og í öðru sæti yfir mest sóttu leiki þar í landi.

Fimmhundruð-þúsund QuizUp leikir spilaðir fyrsta sólarhringinn
Fimmhundruð-þúsund leikir voru spilaðir af tölvuleiknum QuizUp fyrsta sólarhringinn eftir að hann kom út.

Höfnuðu tólf milljarða yfirtökutilboði
Hluthafar Plain Vanilla höfnuðu nýverið tólf milljarða yfirtökutilboði bandaríska tölvuleikjafyrirtækisins Zynga Games.

QuizUp í öðru sæti á virtri verðlaunahátíð
Smáleikurinn QuizUp varð í öðru sæti á Crunchies Award í nótt en um er að ræða mjög virta verðlaunahátíð vestanhafs.

QuizUp örast vaxandi leikur í sögu App Store
Smáforritaleikurinn QuizUp hefur aðeins verið á markaðnum í þrjár vikur og hafa þrjár og hálf milljón manna halað niður leiknum. Íslenska fyrirtækið Plain Vanilla framleiðir QuizUp.

Hvetur viðskiptavini til að fylgjast með Plain Vanilla
Bandaríski tæknirisinn Apple telur að viðskiptavinir App Store eigi að fylgjast með Plain Vanilla á árinu 2014.

Fullur fokker af Plain Vanilla fólki
Starfsfólk leikjafyrirtækisins Plain Vanilla skellti sér í hópeflisferð til Akureyrar um liðna helgi

Virði Plain Vanilla hefur aukist tífalt
Verðmæti íslenska leikjafyrirtækisins Plain Vanilla hefur átt- til tífaldast, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Talið er að fyrirtækið sé í dag metið á um tólf milljarða króna