Kaymer höggi á undan Spieth Jón Júlíus Karlsson skrifar 10. maí 2014 10:05 Martin Kaymer hefur leikið mjög vel á Players mótinu í Flórída. VÍSIR/Getty Images
Þjóðverjinn Martin Kaymer hefur eins höggs forystu á Players-meistaramótinu sem fram fer á TPC Sawgrass vellinum á PGA-mótaröðinni. Kaymer er samtals á 12 höggum undir pari þegar mótið er hálfnað og er höggi betri en Bandaríkjamaðurinn ungi, Jordan Spieth, sem er annar. Kaymer setti vallarmet á fyrsta keppnisdegi með því að leika á 63 höggum og lék á 69 höggum í gær. Spieth, sem er tvítugur að aldri, hefur leikið fyrstu tvo hringina á 67 og 66 höggum. Bandaríkjamaðurinn Russell Henley er í þriðja sæti á átta höggum undir pari en í næstu sætum koma m.a. Englendingarnir Lee Westwood og Justin Rose ásamt Spánverjanum Sergio Garcia. Bandaríkjamaðurinnn Phil Mickelson komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Tiger Woods á titil að verja í mótinu en er ekki með vegna meiðsla. Mótið er í beinni útsendingu á Golfstöðinni og hefst bein útsending í dag klukkan 16:30.
Mest lesið Elvar en ekki Friðriksson Körfubolti Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Íslenski boltinn Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg Handbolti Annar þjálfari hættur skömmu fyrir HM Fótbolti Árið enn fullkomið hjá sveinum Guðjóns Vals Handbolti „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Íslenski boltinn Bræður settir í bann en fyrirliðinn sér tækifæri í skandalnum Fótbolti Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Enski boltinn Tekur tólf leikmenn með til Serbíu Körfubolti Uppgjörið: Valur - Fram 27-35 | Meistararnir fóru illa með toppliðið Handbolti Fleiri fréttir Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Luke Donald getur skrifað Ryder-söguna en verður það á móti Tiger? Sakar mótaröðina um að kúga kylfinga Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira