Geggjaður Mini blæjubíll Finnur Thorlacius skrifar 26. maí 2014 12:30
Mini, sem er í eigu BMW, sýndi þennan gullfallega hugmyndabíl á bílasýningunni Concorso d´Eleganza Villa d´Este á Ítalíu, sem nú er nýafstaðin. Mini smíðaði þenna bíl í samstarfi við breytingafyrirtækið ítalska Touring Superleggera. Þessi smái tveggja sæta bíll Mini er rafmagnsbíll og leitt er að því líkum að þar sé að finna sömu drifrás og er í nýja BMW i3 rafmagnsbílnum. Það væri alls ekki vitlaust hjá Mini að útvíkka bílalínu sína með svona bíl, en mörgum finnst að of margar útfærslur séu nú þegar til að Mini Cooper bílnum og að þessum bíl yrði mjög vel tekið af aðdáendum Mini bíla. Að minnsta kosti hefur þessi hugmyndabíll fengið mjög góðar viðtökur á bílavefjum og þykir flestum hann ógnarfríður bíll. Eitt það óvenjulegast við bílinn er „bakugginn“ sem er á skotti hans, en í heild er þarna kominn einkar vel teiknaður bíll. Bíllinn er að mestu leiti úr koltrefjum og áli og ætti því að verða afar léttur bíll. Að innan er óhætt að segja að naumhyggja ráði ríkjum, en mælaborð hans er afar einfalt. Engu að síður er allt sérlega vel útfært og fallegt innanborðs og svo virðist sem efnisval sé með því ríkulegra. Hvort sem að þessi bíll fer í framleiðslu, eður ei, eru margir sem hvetja Mini til þess að svo verði.Fríður á alla kanta.Naumhyggjan allsráðandi innandyra.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent