Fjöldi fólks leggur leið sína vestur á firði til þess að vera viðstatt og taka þátt í hátíðinni, en dagskráin í dag er þéttskipuð, og hefur verið síðan hátíðin hófst á miðvikudaginn.
Meðal þeirra sem hafa lagt leið sína á Act Alone eru Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri og eiginmaður hennar, leikarinn Arnar Jónsson. Þá er Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir á Suðureyri, ásamt eiginmanni sínum Agli Ólafssyni. Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Bjartrar Framtíðar er einnig á Suðureyri í fylgd unnusta síns, Guðmundi Kristjáni Jónssyni.

Þá er Kolbrún Halldórsdóttir með myndlistarsýningu Eddu Heiðrúnar Backman, Eirikur Örn Norðdahl les ljóð i Þurrkverinu í kvöld og svo mætti lengi telja.
Í gærkvöldi lék Egill Ólafsson, Stuðmaður, á als oddi.
Hann söng lög úr söngleiknum Gretti auk þess sem hann gerði sér lítið fyrir og tók nokkur Bítlalög við mikinn fögnuð viðstaddra.

Saga er einn áhugaverðasti dansari og danshöfundur landsins og gaf hvergi eftir í flutningi sínum í þetta sinn.
Saga er einnig meðlimur sviðslistahópsins 16 elskenda sem leggur nú drög að nýju verki sem ber titilinn Persónur og leikendur og verður án efa spennandi að sjá.
Í dag skemmtir Sirkus Íslands um allt þorp, auk þess sem Villi Naglbítur heldur vísindanámskeið fyrir þá yngstu.


"Ég lék fyrst í Grande árið 2011, en verkefnið var útskriftarverkefni Tyrfings úr Fræði og Framkvæmd í Listaháskólanum. Síðan höfum við breytt því og lagað það til, enda höfum við sýnt það víða. Mér þykir mjög vænt um verkið og hlutverkið, en ég leik miðaldra hommahækju í Hlíðunum sem pínir son sinn til að búa til með sér skemmtiatriði fyrir fimmtugsafmæli sem henni er ekki einu sinni boðið í," segir Hjörtur Jóhann og hlær.
Þá bíða áhorfendur í ofvæni eftir Sveinsstykki Þorvaldar Þorsteinssonar, sem Arnar Jónsson leikur, sem sýnt verður í félagsheimilinu klukkan 8.
Leikritið Múrsteinn með Benedikt Gröndal verður svo sýnt í Þurrkverinu klukkan 10.
Myndband af gærdeginum á hátíðinni má sjá hér að neðan.