„Þetta voru einhverjir æstustu áhorfendur sem ég hef séð," segir Egill. Sveitin hefur nú sent einum aðdáanda sem nefbrotnaði í látunum áritaðan DVD-disk. „Okkur finnst auðvitað leiðinlegt að hún hafi slasast," bætir Egill við.
Ólýsanlegar viðtökur
Egill segir að tónleikar sveitarinnar á laugardagskvöldið hafi verið algjörlega ótrúlegir. „Fólk þekkti öll lögin og tók vel undir. Það var ótrúlegt stuð á fólki. Reyndar svo mikið stuð að við þurftum að gera hlé eftir þriðja lagið okkar og reyna að róa fólk niður. Ég sá að gæslan þurfti að skerast í leikinn ansi oft og kannski gott að taka það fram að þeir sem voru í gæslunni stóðu sig ótrúlega vel," segir Egill.
Strákunum í Quarashi er umhugað um aðdáendur sína og þegar þeir lásu frétt Vísis í morgun um að Svava Dís Guðmundsdóttir hafi nefbrotnað á tónleikum sveitarinnar ákváðu þeir að senda henni áritaðan DVD-disk með upptöku af tónleikum frá Bestu útihátíðinni í fyrra. Svava ferðaðist til Eyja gagngert til þess að sjá Quarashi spila en nefbrotnaði í látunum og heyrði aðeins þrjú lög með sveitinni.
„Við vonum að þetta verði einhver smá sárabót fyrir hana. Okkur finnst ekki gaman þegar fólk meiðist á tónleikunum okkar."
Blaðamaður Vísis heyrði í Svövu sem var sátt með gjöf sveitarinnar.
Síðustu tónleikarnir
Egill segir að þetta hafi verið síðustu tónleikar sveitarinnar. „Já, þetta í síðasta skiptið sem við komum fram. Við sögðum þetta auðvitað líka síðast og maður getur aldrei sagt með vissu hvað gerist í framhaldinu. En ég er nokkupð viss um að það hafi verið samdóma álit okkar að þetta sé í síðasta skiptið sem við komum fram."
Egill segir meðlimi sveitarinnar þakkláta fyrir móttökurnar í Eyjum. „Þetta var frábær upplifun. Fólkið þekkti öll lögin, allir voru í stuði. Móttökurnar voru rosalegar. Inn á milli tveggja laga bað ég fólk að láta í sér heyra og móttökurnar frá áhorfendum voru ólýsanlegar. Ég fékk í eyrun, lætin voru svo rosaleg."
Hér að neðan má sjá myndband frá tónleikunum.