Venju samkvæmt er tíu af bestu kylfingum landsins boðið til leiks, en í ár spila þau til styrktar einhverfra barna.
Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo einvígið (e. shoot-out). Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.

Í ár er það Styrktarfélag barna með einhverfu sem nýtur góðs af og fær eina milljón króna frá DHL en félagið styrkir og styður málefni er varðar einhverf börn.
Birgir Leifur Hafþórsson, sexfaldur Íslandsmeistari í golfi, vann mótið í fyrra, en hann er ekki skráður til leiks í ár þannig hann ver ekki titilinn að þessu sinni.
Það vantar þó ekki gæðin í hópinn sem keppir á Nesvellinum á mánudaginn. Kristján Þór Einarsson, Íslandsmeistari í holukeppni, Helga Kristín Einarsdóttir, Íslandsmeistari unglinga, og atvinnukylfingarnir Þórður Rafn Gissurarson og Ólafur Björn Loftsson eru á meðal þátttakenda.
Keppendur 2014:
Axel Bóasson, GK - Klúbbmeistari GK 2014
Bjarki Pétursson, GB - Klúbbmeistari GB 2014
Björgvin Sigurbergsson, GK - Marfaldur Íslandsmeistari
Helga Kristín Einarsdóttir, NK - Klúbbmeistari NK og Íslandsmeistari
Hlynur Geir Hjartarson, GOS - Klúbbmeistari GOS 2014
Kristján Þór Einarsson, GKj - Íslandsmeistari í holukeppni 2014
Nökkvi Gunnarsson, NK - Sigurvegari opinna móta á
Ólafur Björn Loftsson, NK - Klúbbmeistari NK 2014
Tinna Jóhannsdóttir, GK - Íslandsmeistari í holukeppni 2014
Þórður Rafn Gissurarson, GR - Atvinnumaður í golfi
Sigurvegarar frá upphafi
1997 Björgvin Þorsteinsson
1998 Ólöf María Jónsdóttir
1999 Vilhjálmur Ingibergsson
2000 Kristinn Árnason
2001 Björgvin Sigurbergsson
2002 Ólafur Már Sigurðsson
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir
2004 Magnús Lárusson
2005 Magnús Lárusson
2006 Magnús Lárusson
2007 Sigurpáll Geir Sveinsson
2008 Heiðar Davíð Bragason
2009 Björgvin Sigurbergsson
2010 Birgir Leifur Hafþórsson
2011 Nökkvi Gunnarsson
2012 Þórður Rafn Gissurarson
2013 Birgir Leifur Hafþórsson

