Þar sem tímatakan í gær fór fram í rigningu gátu allir ökumenn valið um dekkjagerð í upphafi keppninnar. Fernando Alonso sat eftir á ráslínu þegar ökumenn fóru af stað í upphitunarhring. Hann fékk refsingu vegna þess að vélvirkjar hans voru á brautinni eftir að þeir áttu að vera búnir að yfirgefa hana.
Lewis Hamilton náði forystunni af Nico Rosberg strax í ræsingunni. Sebastian Vettel hafði náði fyrsta sætinu en missti það þegar hann missti af beygju og þurfti að gefa sætið eftir.
Rosberg lenti aftan á bíl Hamilton þegar Þjóðverjinn var að reyna að taka fram úr. Vinstra afturdekk á bíl Hamilton sprakk við snertinguna Hamilton tapaði mörgum sætum. Hluti af framvæng Rosberg brotnaði af í sömu andrá en Rosberg gat haldið áfram.
Rosberg tók þjónustuhlé til að fá nýjan framvæng og nýjan dekkjagang. Daniel Ricciardo tók þá við forystunni.
Ricciardo gerði vel í að mjaka sér burt frá Raikkonen sem var annar. Bilið á milli þeirra jókst hægt en örugglega.
Rosberg náði þriðja sæti á 25. hring og hóf þá að elta uppi Daniel Ricciardo. Skömmu síðar náði Rosberg öðru sæti af Raikkonen og þá voru 22 sekúndur á milli Rosberg og Ricciardo. Allt kom fyrir ekki, Rosberg náði ekki Ricciardo á lokasprettinum.

„Hér eru nánast jafn margir ástralskir fánar og í Melbourne,“ sagði himinlifandi Ricciardo eftir keppnina og bætti svo við „Þegar maður leiðir keppnina svona lengi snýst allt um að vera eins stöðugur og hægt er.“
„Ég held að það gæti verið erfitt í ár,“ segir Bottas um hvort það styttist í að hann vinni keppni.
„Árekstur innan liðsins er algjörlega óásættanlegur,“ segir Toto Wolff, keppnisstjóri Mercedes sem er allt annað en kátur með sína menn í dag.
Mercedes liðið verður með fund innan stundar þar sem ökumenn og stjórnendur liðsins ræða atburði dagsins.

1.Daniel Ricciardo - Red Bull - 25 stig
2.Nico Rosberg - Mercedes - 18 stig
3.Valtteri Bottas - Williams - 15 stig
4.Kimi Raikkonen - Ferrari - 12 stig
5.Sebastian Vettel - Red Bull - 10 stig
6.Kevin Magnussen - McLaren - 8 stig
7.Jenson Button - McLaren - 6 stig
8.Fernando Alonso - Ferrari - 4 stig
9.Sergio Perez - Force India - 2 stig
10.Daniil Kvyat - Toro Rosso - 1 stig
11.Nico Hulkenberg - Force India
12.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso
13.Felipe Massa - Williams
14.Adrian Sutil - Sauber
15.Esteban Gutierrez - Sauber
16.Max Chilton - Marussia
17.Marcus Ericsson - Caterham
Jules Bianchi - Marussia - kláraði ekki
Lewis Hamilton Mercedes - kláraði ekki
Romain Grosjean - Lotus - kláraði ekki
Pastor Maldonado - Lotus - kláraði ekki
André Lotterer - Caterham - kláraði ekki