Bandaríska rokksveitin Slipknot hafa nú opinberað myndband við lagið „The Devil in I“ og hefur myndbandið nú þegar hlotið mikið lof. Það er M. Shawn Crahan, eða Trúðurinn, sem leikstýrði myndbandinu. Eins og von var á frá Slipknot hefur myndbandið hryllingsmyndablæ yfir sér og ætti því engin að vera svikinn. En lagið „The Devil In I“ verður á næstu breiðskífu Slipknot sem er væntanleg í október. Verður þetta fyrsta plata Slipknot eftir að bassaleikarinn Paul Gray lést og trommarinn Joey Jordison sagði skilið við sveitina.

Hljómsveitin Foo Fighters kom fram á risatónleikum í London um helgina þegar að þeir spiluðu á lokaathöfn Invictus leikana. En Invictus leikarnir eru íþróttaviðburður þar sem að særðir hermenn keppa sín á milli. Lokaathöfnin fór fram á Ólympíuleikvanginum í London og spiluðu Foo Fighters 11 lög á tónleikunum og þar á meðal voru mörg bestu lög sveitarinnar. En Foo Fighters fengu sérstakt boð á leikana frá Harry bretaprins sem hringdi í Dave Grohl til að sannfæra sveitina um að spila. Foo Fighters nýttu ferðina til Bretlands vel og komu fram á nokkrum leynitónleikum til að gleðja aðdándur sína.
Að lokum bendum við hlustendum á að ný hlustendakönnun var send út um helgina á alla sem hafa skráð sig í Hlustendaráð X977. Með því að svara könnuninni hafa þátttakendur bein áhrif á tónlistina sem spiluð er á X977 sem og Pepsi Max listann. En hægt er að skrá sig í Hlustendaráðið hér.