Haustgrill Kia á laugardag Finnur Thorlacius skrifar 11. september 2014 09:32 Kia Sportage.
Haustgrill Kia verður haldið nk. laugardag 13. september kl. 12-16. Fjölbreyttur bílafloti Kia verður að sjálfsögðu í aðalhlutverkinu í sýningarsal Bílaumboðsins Öskju að Krókhálsi 11. ,,Við ætlum að fagna haustinu sem er tími uppskeru og viljum eiga skemmtilegan dag hér í Öskju. Kia bílarnir hafa fengið góða dóma fyrir hönnun og sparneytni og þá fylgir 7 ára ábyrgð öllum nýjum Kia bílum, lengsta verksmiðjuábyrgð sem bílaframleiðandi býður upp. Nýr Kia bíll er í ábyrgð til 2021,” segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju. Margt skemmtilegt verður um að vera á sýningunni. Gestum verður boðið upp á pylsur, gos og ís auk þess sem andlitsmálun verður í boði fyrir börnin og trúðurinn Wally verður á svæðinu kl. 13.30-15.00. Ýmis tilboð verða í gangi á meðan sýningu stendur og má nefna kaupauka upp á 50 þúsund krónur sem fylgir öllum nýjum Kia bílum sem keyptir eru á sýningunni. Þá verður boðið upp á sérkjör á fjármögnun til kaupa á nýjum Kia bíl. Einnig verður skemmtilegur myndaleikur í gangi þar sem iPad er í verðlaun.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent