Nú munar 17 stigum á Rosberg og Hamilton sem þýðir að keppnin í Abú Dabí, sem gefur tvöföld stig verður gríðarlega spennandi. Ef Rosbeg vinnur í Abú Dabí þá verður Hamilton að ná öðru sæti, til að verða heimsmeistari.
Ræsingin var alveg laus við óhöpp. Allir 18 bílarnir komust í gegnum fyrstu hringina áfalla laust. Litlar sviftingar urðu, Sebastian Vettel tapaði þó tveimur sætum.
Massa fékk fimm sekúndna stopp í refsingu fyrir að aka of hratt inn á þjónustusvæðinu. Leiðinlegt fyrir heimamanninn, aðdáendur hans voru alls ekki kátir. Baul þeirra minnti óneitanlega á mótmæli áhorfenda á fotboltaleikjum.
Ökumenn kvörtuðu sáran undan dekkjasliti, blöðrur mynduðust á framdekkjunum og afturdekkin tættust upp. Pirelli breytti dekkjavalinu til að hafa mýkri dekk vegna nýs malbiks á brautinni. Allt vegna ummæla Massa eins og Vísir hefur áður greint frá. Pirelli getur heldur betur fríað sig ábyrgð.
Annað þjónustuhlé Valtteri Bottas var afar langt vegna þess að það þurfti að óla Bottas betur niður í bílinn eftir að beltin virtust hafa losnað örlítið.
Hamilton gerði örlítil mistök og var heppinn að lenda ekki á varnarvegg. Hamilton var að reyna að nýta plássið á brautinni eftir að Rosberg hafði tekið þjónustuhlé. Mistökn kostuðu hann mögulega forystu í keppninni því hann hafði náð gríðar góðum tímum rétt áður en hann gerði þessi mistök.

Barátta Mercedes manna var gríðarlega spennandi síðustu hringi keppninnar. Bilið var um hálf til ein sekúnda og Hamilton sýndi að hann langaði að vinna keppnina.
Kimi Raikkonen hélt aftur af Fernando Alonso í nokkra hringi. Það er afar óvenjulegt af Ferrari að beita ekki liðsskipun í þessum aðstæðum, Alonso var svo greinilega fljótari á brautinni. Þetta er sterk vísbending um að Alonso sé hiklaust að fara frá Ferrari.
„Mér hefur liðið vel í bílnum alla helgina, andrúmsloftið í Brasilíu hefur verið frábært. Gaman að sjá stuðninginn sem Felipe fær hérna oog takk fyrir minn stuðning líka,“ sagði Rosberg alsæll eftir keppnina.
Bíllinn var frábær, góð keppni fyrir Nico. Ég gerði smá mistök. Gaman að sjá Felipe hérna uppi stuðningurinn er frábær,“ sagði Hamilton eftir keppnina.
Ég gerði nokkur mistök en tókst samt að ná verðlaunapalli sem er frábært. Ég fékk 5 sekúndna refsinguna og stoppaðisvo óvart fyrir framan McLaren en takk fyrir stuðninginn,“ sagði Massa undir góðar undirtektir áhorfenda.

1.Nico Rosberg - Mercedes - 25 stig
2.Lewis Hamilton - Mercedes - 18 stig
3.Felipe Massa - Williams - 15 stig
4.Jenson Button - McLaren - 12 stig
5.Sebastian Vettel - Red Bull - 10 stig
6.Fernando Alonso - Ferrari - 8 stig
7.Kimi Raikkonen - Ferrari - 6 stig
8.Nico Hulkenberg - Force India - 4 stig
9.Kevin Magnussen - McLaren - 2 stig
10.Valtteri Bottas - Williams - 1 stig
11.Daniil Kvyat - Toro Rosso
12.Pastor Maldonado - Lotus
13.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso
14.Esteban Gutierrez - Sauber
15.Sergio Perez - Force India
16.Adrian Sutil - Sauber
Romain Grosjean á Lotus og Daniel Ricciardo á Red Bull kláruðu ekki.