Uppnám á Airwaves: Grímum Reykjavíkurdætra stolið Aðalsteinn Kjartansson skrifar 6. nóvember 2014 19:09 Reykjavíkurdætur koma fram á Airwaves á laugardag.
Sex grímum Reykjavíkurdætra var stolið af skemmtistaðnum Prikinu í gærkvöldi. Meðlimir rappsveitarinnar ætluðu að nota grímurnar þegar þær koma fram á tónleikahátíðinni Iceland Airwaves um helgina. Tinna Sverrisdóttir, ein Reykjavíkurdætra, segir að grímurnar hafi horfið um klukkan ellefu í gærkvöldi. „Þær voru í rauðum poka klukkan ellefu í gær á Prikinu. Vinkona mín var með þær en fór á klósettið og þegar hún kom til baka var pokinn horfinn með öllum grímunum,“ segir hún. „Við Reykjavíkurdætur erum að nota þetta í atriði á Airwaves. Þetta er aðalatriðið mitt sem allar þessar grímur verða í. Mér finnst þetta mjög mikilvægt,“ segir hún. Tinna segist ekki vera búin að fá neinar ábendingar um hvar grímurnar séu niðurkomnar. Hún býður þeim sem tók grímurnar að skila þeim og að með því ljúki málinu. „Ég bið um grímurnar í kærleik og ég vona að ég fái þær í kærleik til baka,“ segir hún. „Ég held að það skili sér ekki að vera með hótanir, þá held ég að það sé ekki líklegt að fólk gefi sig fram. Sá hinn sami má bara skila pokanum á Prikið og þar með sleppur hann því að lenda í Reykjavíkurdætrum,“ segir Tinna. Reykjavíkurdætur koma fram á Airwaves á laugardag og segir Tinna að grímurnar þurfi að vera búnar að skila sér fyrir hádegi þann dag.
Airwaves Mest lesið Íslensk fyrirsæta slær í gegn á tískupöllum Mílanó Tíska og hönnun Kristrún meðal hundrað rísandi stjarna Time Lífið Herra skepna sló Hafþór utan undir Lífið Ekki er allt gull sem glóir Gagnrýni Kláraði lögfræði meðan hún sat fyrir hjá Dior Tíska og hönnun Leið yfir hana umkringd nöktum konum Lífið Hnetukjúklingurinn hennar Höllu Lífið Djúpt snortinn yfir viðbrögðum samfélagsins Tónlist Aðstoðarþjálfarinn reyndist ekki vera transkona Lífið Danir taka ekki afstöðu gegn Ísrael Lífið Fleiri fréttir Leið yfir hana umkringd nöktum konum Herra skepna sló Hafþór utan undir Danir taka ekki afstöðu gegn Ísrael Aðstoðarþjálfarinn reyndist ekki vera transkona Hnetukjúklingurinn hennar Höllu Kristrún meðal hundrað rísandi stjarna Time Er hún með „Bennifer“ hálsmen? Páskaungi á leiðinni hjá Kristínu og Sverri Hefur engan áhuga á góðlátlegum orðum Watson Play-liðar minnast góðu tímanna „kkk“ í klukku vekur lukku: „Hafa menn ekki meira kjöt á beinunum?“ Fanney og Teitur orðin þriggja barna foreldrar Nicole Kidman og Keith Urban hvort í sína átt Fjöldi fólks á frumsýningu kynlífsmyndbands „Erfitt að koma í veg fyrir slæm samskipti ef fólk segir ekki frá“ Viðkvæmar viðræður, lausn Assange og næstu skref WikiLeaks Íslensk kjötsúpa eins og hún gerist best Gjaldþrot Play setur RIFF úr skorðum: „Þetta kemur á versta tíma“ Stjörnufans og forsetar á Rauðu myllunni Ung, upprennandi og sjóðheit stjarna á lausu „Það er ekkert sem læknar þetta alveg“ Stjörnulífið: Tatiana og Ragnar í kastala í Frakklandi Egill og Thelma eiga von á sínu öðru barni Verður aðalnúmer hálfleikssýningar Ofurskálarinnar „En áttu ekki dóttur?“ Selena Gomez giftist Benny Blanco Krakkatían: Lestrarkeppni, flugumferð og leiksýning Rapparinn og málverndarsinninn frjáls ferða sinna Boðaði vinkonurnar í bústað eftir að hafa upplifað Tinder á sterum Fréttatía vikunnar: Moulin Rouge, Blóðbankinn og Eurovision Sjá meira