
Jules Bianchi ók of hratt

Hann er enn meðvitundarlaus en er ekki haldið sofandi lengur. Hann hefur verið fluttur heim til Frakklands en hann var á sjúkrahúsi í Japan fyrstu vikurnar eftir óhappið.
Rannsóknarnefnd var sett á laggirnar fljótlega eftir óhappið. Nefndin hefur nú skilað skýrslu sinni.
Í skýrslunni kemur meðal annars að „Bianchi hægði ekki nægilega á sér til að forðast það að missa stjórn á bíl sínum á sama stað á brautinni og Sutil fór út af“.
Einnig kemur fram að á þeim tíma sem það tók bílinn að renna út af brautinni notaði Bianchi bæði bremsu og inngjafarpedalana. Bíllinn lenti á 6500 kg. vinnuvélinni á 126 km/klst.
„Hugsanlega var Bianchi að einbeita sér að því að ná stjórn á bíl sínum eftir að framdekkin læstust, til að forðast vinnuvélina,“ segir líka í skýrslunni.
Marussia liðið, sem Bianchi ók fyrir neitaði strax að hafa sagt ökumanninum að hraða ferðinni til að forðast fram úr akstur keppinautar. Marussia liðið hefur nú verið lýst gjaldþrota og stendur til að bjóða bú félagsins upp.
Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Dimmur dagur á Suzuka
Fögnuður Mercedes liðsins var frekar lágstemmdur eftir að hafa landað fyrsta og öðru sæti í keppninni í Japan. Ástæðan var slys Jules Bianchi, ökumanns Marussia liðsins sem var fluttur á sjúkrahús með alvarlega höfuðáverka.

Ólíklegt að Jules Bianchi nái meðvitund
Jules Bianchi lenti í alvarlegu slysi á sunnudag í japanska kappakstrinum. Hann hefur nú verið greindur með alvarlega áverka á heila.

Jules Bianchi er kominn í öndunarvél og líðan hans stöðug
Franski ökumaðurinn Jules Bianchi missti stjórn á Marussia bíl sínum undir lok japanaksa kappakstursins í morgun. Hann lenti á vinnutæki sem var að fjarlægja annan bíl sem farið hafði út af á sama stað.

Jules Bianchi ekki lengur haldið sofandi
Jules Bianchi er ekki lengur haldið sofandi, hann hefur verið fluttur heim til Frakklands. Hann er þó enn meðvitundarlaus og ástand hans er enn alvarlegt.

Lewis Hamilton vinnur í Japan
Lewis Hamilton vann Japanskappaksturinn á Suzuka brautinni. Liðsfélagi hans hjá Mercedes Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel á Red Bull varð þriðji.