MAX1 Bílavaktin og Nokian styrkja Bleiku slaufuna um 1.500.000 kr. Finnur Thorlacius skrifar 3. desember 2014 16:32 Tuija Aro frá Nokian Tires í Finlandi, Þröstur Árni Gunnarsson, fjármálastjóri Krabbameinsfélags Íslands og Sigurjón Árni Ólafsson, framkvæmdastjóri MAX1 Bílavaktinnar við afhendingu styrksins.
MAX1 Bílavaktin sem er söluaðili Nokian tires á Íslandi afhenti nú í vikunni Krabbameinsfélagi Íslands styrk að upphæð 1.500.000 kr. Upphæðin safnaðist í október og nóvember en hluti söluágóða Nokian dekkja á þessu tímabili rann til Bleiku slaufunnar, árvekniátaks Krabbameinsfélags Íslands í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. MAX1 Bílavaktin og Nokian tires vilja leggja sitt af mörkum til samfélagsins. „Það er mikil ánægja meðal starfsmanna með samstarfið“ segir Sigurjón Árni Ólafsson, framkvæmdastjóri MAX1 Bílavaktinnar. „Með því að leggja Bleiku slaufunni lið viljum við vekja athygli á þessum mikilvæga málstað. Um helmingur kvenna mætir ekki reglulega í leit að leghálskrabbameini en átak eins og þetta hvetja konur til að mæta.“ Á heimasíðu Bleiku slaufunnar er að finna margvíslegar upplýsingar um leitina og þar er jafnframt að finna svör við spurningum varðandi skoðunina sjálfa. „Við erum mjög ánægð með samstarfið við MAX1 og Nokian tires. Það er ánægjulegt þegar fyrirtæki sýna frumkvæði að samstarfi“ segir Þröstur Árni Gunnarsson, fjármálastjóri Krabbameinsfélags Íslands. „Átakið í ár gekk vonum framar og margar konur sem höfðu ekki mætt reglulega í leit hafa nú komið í eftirlit. Við hvetjum allar konur sem enn hafa ekki mætt í reglulega leit að panta tíma“. Þess má geta að MAX1 og Nokian tires hyggja á áframhaldandi samstarf við Krabbameinsfélag Íslands. MAX1 Bílavaktin rekur fjögur verkstæði á höfuðborgarsvæðinu þar sem boðið er upp á hraðþjónusta fyrir allar tegundir bíla. MAX1 er söluaðili Nokian tires á Íslandi en Nokian er eini framleiðandinn sem sérhæfir sig í aðstæðum eins og finnast hér á landi. Nokian dekkin eru ein öruggustu dekk sem völ er á og hafa ítrekað verið valin bestu dekkin í gæðakönnunum, nú síðast í dekkjakönnun FÍB. Til viðbótar við dekkjaþjónustu býður MAX1 einnig upp á smurningu, bremsu-, rafgeyma-, og demparaþjónusta og ýmsar smáviðgerðir.
Mest lesið Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent