Áttunda árið í röð munu Stöð 2 og Vísir sýna beint frá Aftansöng í Grafarvogskirkju á aðfangadagskvöld. Landsmenn hafa tekið þessari útsendingu fagnandi undanfarin ár enda alltaf jafn hátíðleg.
Útsendingin hefst stundvíslega klukkan 18:00. Prestur verður séra Vigfús Þór Árnason, kór Grafarvogskirkju syngur og Margrét Pálmdóttir stjórnar stúlknakór.
Einsöngvari verður Egill Ólafsson og tónlistarmenn með honum verða Matthías Stefánsson á fiðlu og Hákon Leifsson spilar á orgel.
