„Þetta er lítið sætt ljóð um vongleði – eða það að reyna að halda áfram – til dæmis þó maður sé kominn á miðjan aldur,“ segir Anton Helgi Jónsson skáld um ljóð sitt Horfurnar um miðja vikuna.
Fyrir það hlaut hann á þriðjudaginn Ljóðstaf Jóns úr Vör, viðurkenningu sem Kópavogsbær veitir í árlegri ljóðasamkeppni til heiðurs skáldinu Jóni úr Vör.
Horfurnar um miðja vikuna
Það er bara miðvikudagur
enn getur allt gerst
enn er von
enn má finna rétta taktinn
finna sinn hljóm
jafnvel finna sig í góðu lagi
allt getur gerst
meðan enn leynist bílskúr
baka til í hausnum á mér
og band
sem djöflast frameftir.
„Þegar ég orti þetta ljóð var ég ekki að hugsa um sjálfan mig en verð að viðurkenna að þegar ég fékk tilkynninguna um verðlaunin þá fann ég að þetta er í rauninni mjög persónulegt ljóð. Það er persónuleg tjáning í því,“ segir Anton Helgi og upplýsir að ljóðið sé í bók sem sé á síðustu metrunum hjá honum og komi út á þessu ári. „Í henni eru borgarljóð og ljóð um alls konar fólk,“ segir hann. „Ég hef mikið lagt mig fram um það í minni ljóðagerð að láta alls konar persónur stíga fram.“
Um þrjú hundruð ljóð bárust í keppnina að þessu sinni en hún hefur þann tilgang að efla og vekja áhuga á íslenskri ljóðlist. Í öðru sæti í ár varð Adolf Friðriksson fornleifafræðingur með ljóð sitt Háaloft og Uggi Jónsson, skáld og þýðandi, varð í því þriðja með ljóð sitt Mávarnir.
Anton Helgi ávarpaði samkomuna í Salnum eftir að hafa tekið við viðurkenningunni og sagði það mikinn heiður að taka við verðlaunum sem kennd væru við Jón úr Vör.
„Ef Jón væri staddur hérna myndi ég segja: Takk fyrir ljóðin þín, þau gáfu mér rétta tóninn þegar ég var unglingur, takk.“
Anton Helgi hefur gefið út sjö ljóðabækur og eina skáldsögu og á fjörutíu ára útgáfuafmæli á þessu ári. Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars um ljóð hans að það hafi vakið athygli allra dómnefndarmanna við fyrsta lestur. „Ljóðið er ort af snerpu og þrótti af skáldi sem hefur nútímalegt ljóðmál fullkomlega á valdi sínu.“
Anton Helgi er þrettándi handhafi Ljóðstafsins. Hann er sá eini sem hefur nú hlotið hann tvívegis, fyrra skiptið var árið 2009.

