
Evrópusambandsaðild fyrir frjálslynt fólk
En þessi rök eiga bara ekki við hér á Íslandi. Hér eru aðstæður allt aðrar en í flestum öðrum Evrópulöndum – svo ekki sé minnst á Bretland.
Evrópsk samfélög eru rótgróin markaðssamfélög. Þau byggja á aldalangri markaðshefð, þar sem fjölmargir ólíkir aðilar eiga viðskipti á frjálsum forsendum. Fákeppni er til muna sjaldgæfari en hér á landi, sérlega meðal stærri ríkja. Jafnvel Norðurlöndin, sem breskir frjálshyggjumenn horfa til sem ófrelsissamfélaga ríkisafskipta, byggja á fullkomnu viðskiptafrelsi, opnu hagkerfi og mikilli erlendri fjárfestingu. Viðskiptalíf er mjög frjálst á Norðurlöndunum, þótt ávinningur einstaklinga og fyrirtækja sé tempraður með háum sköttum. Bretland er líklega mesta markaðshyggjusamfélagið í Evrópu. Fyrir vikið upplifa Bretar oft að regluverk Evrópusambandsins hefti óheft markaðsfrelsi, með samræmdum reglum um markaðssetningu samfara opnun markaða aðildarríkja.
Ísland er ekki markaðssinnað
Ísland er ekki markaðssinnað land og hefur aldrei verið. Svíþjóð er frjálshyggjuparadís í samanburði við Ísland. Hér hefur verið landlæg fákeppni og einokun og pólitískt vald og viðskiptavald verið samtvinnað allt fram á níunda áratuginn. Innflutnings- og útflutningshöft hafa einkennt efnahagslífið og eru enn ráðandi í fjölmörgum atvinnugreinum. Allar breytingar í frelsisátt á Íslandi hafa komið að utan fyrir þrýsting alþjóðastofnana og einkum í kjölfar samninga um evrópska efnahagssamvinnu – fyrst aðild að EFTA og svo breytingin mikla með EES.
Í fljótu bragði man ég bara eina breytingu í frjálsræðisátt sem varð fyrir algerlega innlenda baráttu og það var þegar bjórbannið var afnumið fyrir réttum aldarfjórðungi.
Fyrir Bretum geta reglur Evrópusambandsins verið sem ánauð, því þær setja nýjar reglur um markaðssetningu. Fyrir okkur hafa sömu reglur í för með sér frelsun, því við höfum BÆÐI búið við séríslenskar reglur um markaðssetningu OG bönn við frjálsum viðskiptum milli landa. Reglur Evrópusambandsins hafa opnað fyrir okkur markaði og búið til ný tækifæri hér á landi.
Íslenskt haftasamfélag byggir á gömlum grunni og það er hægt að finna hliðstæðu við orðræðu aðildarsinna og aðildarandstæðinga nú í aðdraganda Píningsdóms árið 1490. Þá, eins og nú, snerist ágreiningur um hvort ætti að opna hagkerfið og auka samkeppni og leyfa þeim atvinnugreinum sem gátu borgað hæstu launin að drífa hagþróunina áfram, eða hvort ætti að loka landinu til að tryggja áframhaldandi drottnunarstöðu þeirra atvinnugreina sem nutu sín vel innan hafta og byggðu samkeppnisforskot sitt á lágum launum landsmanna. Seinni kosturinn varð ofan á með Píningsdómi, þriðjungur þjóðarinnar var hnepptur í vistarband og við tók 400 ára sjálfsköpuð fátæktartíð.
Eftir að losnaði um vistarbandið upp úr 1880 og fram til upptöku íslenskrar krónu árið 1920 var skammvinnt frjálsræðisskeið, þar sem Ísland naut viðskiptafrelsis og ávinnings af sameiginlegum gjaldmiðli með helstu viðskiptalöndum. Þetta var mikill uppgangstími. Erlend fjárfesting var umtalsverð og sjávarútvegurinn tók gríðarlegt framfarastökk sem hann býr að, enn þann dag í dag.
Samfelld haftasaga
Nærri hundrað ára saga íslenskrar krónu er hins vegar samfelld haftasaga. Flest höft tuttugustu aldarinnar eiga rætur í vandamálum sem leiddu af íslenskri krónu. Gjaldeyrisskortur hefur verið viðvarandi og sífellt hefur þurft að takmarka kaupgetu almennings með gengisfellingum til að lifa með hinni íslensku krónu. Á ólíkum tímum hafa menn reynt ólíkar lausnir. Á sjötta áratugnum var margfalt gengi – ólíkt fyrir ólíkar atvinnugreinar. Hvað er fjárfestingaleið Seðlabankans í dag, þar sem Íslendingar með falið fé í útlöndum fá afslátt af skráðu gengi, annað en önnur útfærsla þeirrar hörmungarstefnu? Á fimmta áratugnum var beitt skömmtunum, því eftirspurn fólks eftir innfluttum varningi var ofviða krónunni. Hvað er lággengisstefna okkar tíma annað en önnur leið til að koma í veg fyrir að venjulegt fólk geti keypt það sem það hefur áhuga á af innfluttum varningi?
Það er gott að lesa útlensk blöð, en það er varhugavert að draga of víðtækar ályktanir af erlendum viðhorfum. Aðild að Evrópusambandinu yrði til mikils frelsisauka fyrir íslenskt samfélag. Flestar þær reglur af evrópskum uppruna sem lúta að starfsumgjörð almenns atvinnulífs, svo sem er varðar samkeppnisreglur, markaðssetningu almennrar vöru, umhverfisreglur, vinnuvernd og jafnréttismál, binda okkur nú þegar með EES-samningnum.
Engar nýjar hömlur fylgja aðild að ESB að þessu leyti. Aðild að ESB mun einungis auka viðskiptafrelsi með landbúnaðarvörur, opna íslenskum framleiðendum landbúnaðarvöru nýja markaði í Evrópu, bæta viðskiptakjör fyrir íslenskar sjávarafurðir á Evrópumarkaði og styðja við nýsköpun og framþróun. Innlendir iðnframleiðendur munu komast úr þeirri stöðu að þurfa að útskýra fyrirbærið EES fyrir hverjum einasta tollverði í Evrópu. Fákeppni mun minnka og erlend fjárfesting aukast. Og sparifjáreigendur og lántakendur munu loks fá vörn í stöðugum gjaldmiðli gegn ofríki ríkisvalds og ráðandi markaðsafla í gegnum eilífa hringrás verðbólgu og gengisfellinga.
Hvernig getur frjálslynt fólk verið á móti þessari framtíð?
Skoðun

Ytra mat í skólum og hvað svo?
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar

Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru
Magnús Rannver Rafnsson skrifar

Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag
Matthildur Björnsdóttir skrifar

Tóbakslaust Ísland! - Með hjálp stefnu um skaðaminnkun
Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar

Meðsek um þjóðarmorð vegna aðgerðaleysis?
Pétur Heimisson skrifar

Tími ábyrgðar í útlendingamálum – ekki uppgjafar
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Takk starfsfólk og forysta ÁTVR
Siv Friðleifsdóttir skrifar

Þjóðarmorðið í Palestínu
Arnar Eggert Thoroddsen skrifar

Eldra fólk, þolendum ofbeldis oft ekki trúað
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Tölfræði og raunveruleikinn
Jón Frímann Jónsson skrifar

Umgengnistálmanir – brot á réttindum barna
Einar Hugi Bjarnason skrifar

Frá dulúð til daglegs lífs: Hvernig nýjasta gervigreindin vinnur með þér – og gerir þig klárari
Sigvaldi Einarsson skrifar

Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru
Magnús Rannver Rafnsson skrifar

Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi
Helga Edwardsdóttir skrifar

Baráttan um þjóðarsálina
Alexandra Briem skrifar

Lagaleg réttindi skipta máli
Kári Garðarsson skrifar

Pride and Progress: Advancing Equality Through Unity
Clara Ganslandt skrifar

Hver rödd skiptir máli!
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Sýnum þeim frelsið
Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar

Endurhæfing skiptir öllu máli í Parkinson
Helga G Halldórsdóttir skrifar

Hinsegin í vinnunni
Halla Gunnarsdóttir skrifar

Við stöndum þeim næst en fáum ekki rödd
Svava Bjarnadóttir skrifar

Sumarorlofið fór í baráttuna fyrir barni - er það sanngjarnt?
Sigríður Auðunsdóttir skrifar

Sjálfstæðisstefnan og frelsið
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Sjö staðreyndir í útlendingamálum
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Þegar fjölbreytileikinn verður ógn: Afneitun, andstaða og ótti við hið mannlega
Haukur Logi Jóhannsson skrifar

Einmanaleiki: Skortir þig tengsl við þig eða aðra?
Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar

Svargrein: Ísland á víst að íhuga aðild að ESB
Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Fjölbreytni í endurhæfingu skiptir máli
Hólmfríður Einarsdóttir skrifar

Sumarfríinu aflýst
Sigurður Helgi Pálmason skrifar