Á tónleikunum í kvöld koma fram hljómsveitirnar Morðingjarnir, Strigaskór nr. 42, For a Minor Reflection, Smári Tarfur, LITH og Pandemic Addiction.
Miðaverð á tónleikana er 1.000 krónur og mun allur ágóði af tónleikunum renna beint til Kristins og fjölskyldu hans.
Einnig verða til sölu diskar með hljómsveitinni KAbear, en þar syngur Kristinn og semur hann einnig öll lögin. Plata hans er einnig fáanleg á gogoyoko.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 og eru eins og fyrr segir á Gauknum.