Fyrrverandi félagar fjölmenna og taka undir Friðrika Benónýsdóttir skrifar 21. mars 2014 12:30 Hljómeyki. "Stærstur hluti dagskrárinnar er eftir íslensk tónskáld sem mörg hver hafa sungið með kórnum á einhverju tímabili,“ segir Marta Guðrún. „
Það voru nokkrir áhugasamir söngvarar sem stofnuðu Hljómeyki fyrir fjörutíu árum. Þau höfðu kynnst í gegnum Pólýfónkórinn og langaði til að starfa í litlum kammerhóp, leggja áherslu á framsækna og nýja tónlist og gera spennandi hluti,“ segir Marta Guðrún Halldórsdóttir, núverandi stjórnandi Hljómeykis. Hún var eðli málsins samkvæmt ekki meðal stofnfélaga en segist líta á sig sem nokkurs konar afkvæmi kórsins þar sem báðir foreldrar hennar voru meðal stofnfélaga. Tímamótanna verður minnst með tónleikum í Hörpu á sunnudaginn klukkan 17 og þar verður farið í gegnum sögu hópsins. „Við ætlum að byrja tónleikana á sama lagi og var sungið fyrst á fyrstu tónleikum Hljómeykis,“ segir Marta. „Síðan ætlum við að fara út í það sem hefur verið samið fyrir okkur, þannig að það verður stiklað á stóru, en stærstur hluti dagskrárinnar er eftir íslensk tónskáld sem mörg hver hafa sungið með kórnum á einhverju tímabili.“ Vonast er til að sem flestir fyrrverandi félagar Hljómeykis mæti á tónleikana og Marta segir marga fyrrverandi félaga hafa staðfest komu sína. „Sem er einmitt hluti af tónleikaplaninu því þeir munu enda á þremur atriðum þar sem fólk úr salnum stendur upp og slæst í hópinn. Þannig að það verður sextíu til sjötíu manna kór sem slær botninn í tónleikana.“ Hljómeyki hefur lengi lagt áherslu á frumsköpun og frumflutt ógrynni íslenskra verka, en hópurinn hefur frumflutt í kringum sextíu tónverk. Kórinn hefur komið fram víða, hérlendis og erlendis, sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, á Myrkum músíkdögum, Kirkjulistahátíð, á Sumartónleikum í Skálholti, sungið með alls kyns poppgrúppum og tekist á við fjölbreytt verkefni með sveitum og listamönnum á borð við Todmobile, Skálmöld, Dúndurfréttir, Jóhann Jóhannsson og fleiri. Stofnfélagar voru um tíu en í dag eru í kórnum tuttugu og þrír söngvarar auk þess sem þó nokkrir í viðbót eru í kallfæri og koma til liðs við hópinn í stærri verkefnum. Hæst ber þó að mati Mörtu þátttöku kórsins í Sumartónleikum í Skálholti þar sem hann hefur frumflutt fjölmörg verk og komið fram nánast á hverju sumri frá upphafi. „Þannig að við eigum heilmikið í þeirri uppbyggingu sem þar hefur orðið,“ segir hún. „Ég held ég megi líka fullyrða að tilvist Hljómeykis hafi orðið til þess að mun meira hefur verið skrifað af íslenskum kórverkum en ella hefði verið.“
Menning Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Meryl Streep verður Joni Mitchell Bíó og sjónvarp Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið X-ið bætir við sig Bolla Lífið Fleiri fréttir Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Verður staðartónskáld Sinfó Fékk leyfi Nóbelskálds fyrir heiti nýrrar bókabúðar í Hamraborg Líf og fjör í loðnu málverkunum Kristrún og Isabelle Huppert flottar á opnun Húsó fjarlægðir af Rúv Sígildar myndir og heimsfræg leikkona á franskri kvikmyndahátíð Viðbjóðurinn fær sviðsljósið: „Eilíft vakir minning þín, slef, prump, piss, og þvag og slím“ Blint stefnumót heppnaðist vel Halla T meðal sofandi risa Líkamsumhirða sem þróast í þráhyggju Bestu og verstu leiksýningar síðasta leikárs Trölli stelur jólunum í Borgarleikhúsinu Baltasar Samper látinn Nýr óperustjóri: Lengri samningar og stöðugleiki nýlunda í íslensku óperulífi Vilhjálmur Bergsson er látinn Ólafur Jóhann er konungur bóksölunnar 2025 Enginn formaður Sjalla, Kaffi Vest-samsærið og vinir skoðanabræðra Sjá meira