
Hin hliðin á þjóðrembunni
Byrjandi í pólitík með enga reynslu og harla litla þekkingu jafnvel á samþykktri stefnu síns eigin flokks en með tiltekna persónulega tengslasögu við múslimska borgara í útlöndum, gerði sér ekki þau sannindi ljós að einstaklingur sem valinn er til þess að leiða hóp flokkssystkina sinna í kosningabaráttu verður að hafa gætur á því hvað hann segir. Frambjóðandinn gerði sér ekki ljóst að slíkur einstaklingur í oddvitasæti talar fyrir fleiri en sjálfan sig og ummæli eins og þau sem viðhöfð voru teljast vera gefin fyrir framboðsins hönd. Svo festi frambjóðandinn sig fyrr en varði í sinni eigin bullinkollu og spriklaði þar eins og fiskur fastur á öngli. Festist æ meir því meir sem spriklað var. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þeir fjölmörgu, góðu Framsóknarmenn sem ég þekki munu taka að sér að uppfræða þennan byrjanda á vígvelli framboða um einföldustu undirstöðuatriði og trúi ekki öðru en hún muni læra þegar fram í sækir – svona þegar góðir félagar úr flokknum og reynslan taka höndum saman um að hjálpa til við heimalærdóminn.
Draugur vakinn úr myrkri þjóðarsál
Ég hef því sannast sagna ekki miklar áhyggjur af því að Framsóknarflokkurinn sé að verða fasískur þótt byrjanda í framboði blautum á bak við bæði eyrun hafi illa orðið fótaskortur á eigin tungu. Ég hef miklu meiri áhyggjur af því að sú bullinkolla vakti upp mikinn og óvæntan stuðning í hópi íslenskra kjósenda sem mættu fúsir til leiks þegar foringi gaf sig fram sem að minnsta kosti sýndist vera að flytja boðskap fasisma um ekki bara óvild heldur blint hatur á tilteknum hópi mikils minnihluta Íslendinga. Miklu verri er þó eftirleikurinn. Þegar þessi hópur veitti fordómum sínum og hatri útrás á blogginu með heiftúðugu orðbragði og jafnvel líflátshótunum.
Getur ekkert sjálft – nema æpt og hótað
Nú er það vel þekkt úr evrópskri sögu að sá hópur einstaklinga sem móttækilegastur er fyrir slíkum boðskap og blindu hatri á minnihlutahópa og útlendinga er yfirleitt fólk sem er illa upplýst, illa að sér, illa skrifandi og illa máli farið og þarfnast því einhvers foringja sem getur komið orðum að þeim hugsunum sem þrífast þarna í myrkum afkimum þjóðarsálar. Það ræður ekki við að taka sjálft þátt í upplýstri umræðu, hvað þá heldur að færa þekkingarleg rök fyrir skoðunum sínum en er umsvifalaust mætt öllum að óvörum þegar slíkur málflutningur öðlast einhvers konar viðurkenningu í orðræðum einhvers foringja. Þá er það mætt tilbúið jafnvel til ofbeldisverka ef á þarf að halda, æpandi fúkyrði með hnefana á lofti.
Þessi sögusannindi koma óhjákvæmilega í hugann þegar lesið hefur verið bloggið og hlustað hefur verið á innhringingarnar þennan sólarhring sem liðið hefur frá kosningaúrslitunum í Reykjavík. Satt er það að ekki er þar víða fyrir að fara mikilli uppfræðslu, ekki mikilli þekkingu, ekki miklum orðaforða umfram sóðaskap, blót, ragn, heift, og heitingar, ekki mikilli málvöndun og varla getu til þess að stafsetja á skiljanlegri íslensku algengustu orð tungunnar eins og reynt hefur þó verið að kenna yngstu börnum fjögurra kynslóða. Margt af þessu fólki fengi hvergi inni í prentmiðlum en lætur sig hafa það að koma fyrir augu alþjóðar á netinu með þennan grunnfærna hatursboðskap, jafnvel undir mynd af sjálfu sér með fjölskyldunni!
Sagan endurtekin?
Ritstjóri Morgunblaðsins mun hafa sagt eitthvað á þá leið að umræðuna um hatursfulla afstöðu margra Íslendinga til útlendinga og minnihlutahópa þurfi að fara að taka ef ekki á illa að fara. Það er rétt hjá honum að tími er kominn til þess að draga þessa skoðanahópa, sem nú tjá sig ákafast á netinu, fram í dagsljósið og láta þá standa fyrir máli sínu opinberlega svo það komi áþreifanlega í ljós á hve þunnri þekkingu og á hve veikluðum röksemdum málflutningurinn hvílir. Þegar það hefur verið eftirminnilega opinberað held ég að fáir myndu vilja láta aðra kenna sig við aðild að þeim „hæfileikahópi“. Og þó? Það skyldi þó aldrei vera?!? Það skyldi þó aldrei vera að slíkt hugarfar sé hin hliðin á íslensku þjóðrembunni? Þannig var það í nasistaríkinu þýska. Þar var fasisminn einfaldlega hin hliðin á þjóðrembu „aríanna“. Þannig getur sagan endurtekið sig – og á til að gera það stundum.
Skoðun

Að flokka hver vinnur og hver tapar
Tryggvi Rúnar Brynjarsson skrifar

Hagur hluthafanna alltaf og undantekningarlaust í forgangi
Jón Kaldal skrifar

Má berja blaðamenn?
Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar

Nýr rektor og 2025 – tímamót í háskólamálum
Ástráður Eysteinsson,Magnús Karl Magnússon,Margrét Helga Ögmundsdóttir,Tinna Laufey Ásgeirsdóttir skrifar

Vonir um vopnahlé eins og hálmstrá
Sveinn Rúnar Hauksson skrifar

Samfélagið innan samfélagsins
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Til hamingju Íslendingar með nýja Óperu
Andri Björn Róbertsson skrifar

Hvers vegna hatar SFS smábáta? Svarið tengist veiðigjöldum
Kjartan Páll Sveinsson skrifar

„Oft er flagð undir fögru skinni“
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Orðhengilsháttur og lygar
Elín Erna Steinarsdóttir skrifar

Fjögurra daga vinnuvika – nýr veruleiki?
Sigvaldi Einarsson skrifar

Ráðherra gengur fram án laga
Svanur Guðmundsson skrifar

Hagkvæmur kostur utan friðlands
Jóna Bjarnadóttir skrifar

Gagnsæi og inntak
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Sumargjöf
Þórunn Sigurðardóttir skrifar

Hannað fyrir miklu stærri markaði
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Grafarvogur framtíðar verður til
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Málþófið um veiðigjöldin vekur miskunnsama Samverja
Sigurjón Þórðarson skrifar

Menntastefna 2030
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Ágætu fyrrum samstarfsaðilar á Þjóðminjasafni Íslands
Uggi Jónsson skrifar

Ferðamannaþorpin - Náttúruvá
Þóra B. Hafsteinsdóttir skrifar

Vonarsvæði fyrir framtíðina – ábyrgð stjórnvalda kallar á verndun
Huld Hafliðadóttir,Heimir Harðarson skrifar

Laxaharmleikur
Jóhannes Sturlaugsson skrifar

Lýðræðið í skötulíki!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Stærðfræðikennari sem kann ekki að reikna? (Og getur ekki lært það!)
Brynjólfur Þorvarðsson skrifar

Íslendingar greiða sama hlutfall útgjalda í mat og Norðurlöndin
Margrét Gísladóttir skrifar

Til varnar jafnlaunavottun
Magnea Marinósdóttir skrifar

Heimaþjónusta og velferðartækni: Lykillinn að sjálfbæru heilbrigðiskerfi
Auður Guðmundsdóttir skrifar

Barnaræninginn Pútín
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Um þjóð og ríki
Gauti Kristmannsson skrifar