„Styrkurinn þýðir það að við getum haldið áfram því starfi sem við höfum hafið með Enza og hannað og þróað með þeim breiðari vörulínu. Núna fáum við tækifæri til að fara út til þeirra og þróa með þeim vörurnar á staðnum og miðla kunnáttu okkar í framleiðslu á vörum,“ segir Helga Ólafsdóttir, stofnandi og yfirhönnuður barnafatamerkisins Ígló&Indí.
Á dögunum var Ígló&Indí úthlutaður styrkur frá Hönnunarsjóði Íslands fyrir verkefnið Songs from the horizon – Ígló&Indí – Spring/Summer 2015. Verkefnið snýst um að stuðla að verðmætasköpun með því að virkja kraft og byggja brú á milli íslenskrar hönnunar og hugvits og fátækra suður-afrískra kvenna, með atvinnuskapandi verkefnum, stuðningi og sjálfbærni við rekstur smáfyrirtækja sem stofnuð eru af Enza-konum á heimaslóðum þeirra í Suður-Afríku.

Sumarið 2013 tók Ígló&Indí fyrsta skrefið til samstarfs við The Enza Women Social Enterprise með samfélagsábyrgð að leiðarljósi með kennslu á endurnýtingu afgangsfatnaðar. Fatnaðurinn gengur svo í endurnýjun lífdaga í formi fallegra nytjamuna fyrir börn sem seldir eru í verslunum Ígló&Indí.
Nú hefur gefist tækifæri til að halda samstarfinu áfram með framleiðslu á línunni Songs from the horizon sem samanstendur af 10 flíkum fyrir stúlkur og drengi. Línan er viðbót við þá sumarlínu sem Ígló&Indí hannar árlega.
Flíkurnar eru allar hannaðar með það að leiðarljósi að nýttar séu „nýjar“ ósöluhæfar flíkur og efnisafskurðir. Ígló&Indí rekur í dag tvær eigin verslanir, í Kringlunni og á Skólavörðustíg 4, og vefverslun.
