Hún gaf nýverið út lagið Both Feet on the Ground og frumflytur það á Lífinu á Visir.is en lagið fylgir fréttinni.
Lag og texti er eftir Kristínu sjálfa en lagið var unnið í samvinnu við tónlistarmennina Kristjönu Stefánsdóttur og Ómar Guðjónsson. Kristín hefur undanfarin ár stundað nám við Complete Vocal-söngskólann í Kaupmannahöfn og er lagið einmitt innblásið af námi hennar þar.
„Lag og texti varð til á nokkrum mínútum þegar ég var að hjóla heim eins og sönnum Dana sæmir. Eftir krefjandi dag þar sem við þurftum að kafa djúpt í okkur varð það til og fjallar um hversu mikilvægt það er að finna sitt grúv eða sinn stað í lífinu. Það er þinn sérstaki staður sem er einstakur af því við erum öll algjörlega einstök og það er bara til eitt eintak af hverjum,“ segir Kristín.
Hún heldur tónleika á Café Deluxe í Hafnarfirði í kvöld ásamt Helga Má Hannessyni píanóleikara. Þar munu þau taka djassstandarda og perlur úr poppheiminum og að sjálfsögðu nýja lagið hennar.
„Mér hefur verið sagt að lagið líkist í raun ekki neinu. Eða sé allavega ólíkt því sem ég syng vanalega, en ég er með frekar dökka rödd og elska þess vegna til dæmis Carpenters og lög með mikla sál. Það verður mikil ást á tónleikunum í kvöld og sungið frá hjartanu,“ segir Kristín og bætir við að framundan séu spennandi tímar.
„Ég er búin að semja annað lag sem mun koma út á næstunni og er ég strax farin að hlakka til að frumflytja það.“