Tónleikar undir sömu yfirskrift fóru fram árið 2012 og vöktu mikla lukku en því miður gekk ekki að halda tónleikana í fyrra.
„Það er ekkert launungarmál að til þess að svona dæmi gangi upp verðum við að leggja til þrotlausa vinnu og í framhaldinu treysta á alla mögulega innkomu til þess að ná endum saman,“ segir Snæbjörn en hann lofar rosalegum tónleikum.
„Við höfum pantað flottasta hljóðkerfi landsins, öll ljós landsins og svo verður flugeldsýning, við erum ekki að spila þetta seif en er ekkert rokk í því að gera hlutina seif,“ segir Snæbjörn og hlær.

„Þetta er svo mikil og löng veisla að við verðum að byrja snemma, við leyfum líka öllum að koma, það er að segja ef að krakkar eru í fylgd með forráðamönnum,“ segir Snæbjörn.
Spurður út í hvort að rokksveitirnar ætli að rokka saman á sviðinu, segir Snæbjörn það geta verið. „Menn hafa pískrað um það í sitt í hvoru horninu um að ákveðin bönd spili saman. Það er samt komin pínu kappsemi í sveitirnar, menn vilja vera bestir og flottastir, þetta verður smá rokkkeppni.“
Miðasala á tónleikana hefst á þriðjudaginn á midi.is.
Á tónleikunum koma fram:
Skálmöld
DIMMA
SÓLSTAFIR
Brain Police
Beneath
Strigaskór nr. 42
In Memoriam
Melrakkar