Skoðun

Fjárlög ríka fólksins

Össur Skarphéðinsson skrifar
Glampinn af silfurskeiðunum hindrar forystumenn ríkisstjórnarinnar í að sjá hvernig hinn helmingur þjóðarinnar lifir. Þeir eru ungir menn, vilja vel, en reynsluheimur þeirra hefur aldrei þekkt skort. Það speglast í fjárlögunum á fyrsta kafla ríkisstjórnarinnar. Þau eru hlaðin gjöfum til hinna sterkefnuðu, stórútgerðar og eignafólks. Hinir borgar brúsann.

Á sama tíma og veiðileyfagjöld eru lækkuð um stórkostlegar upphæðir, og auðlegðarskattur afnuminn, er ráðist að bændum og láglaunafólki, með næstum helmings hækkun matarskatts. Á sama tíma boðar ríkisstjórnin hækkun lyfjakostnaðar fyrir almenning. Viðhald á úr sér gengnum Landspítala situr á hakanum og læknaskortur er fyrirsjáanlegur af því ungir læknar treysta sér ekki til að koma þangað til starfa. Haustkveðjan til atvinnulausra er að skera niður þann tíma sem langtímaatvinnulausir geta notið bóta. Er þetta okkar Ísland?

Á leigumarkaðnum ríkja villt lögmál frumskógarins þar sem ungt fólk hefur aldrei átt í jafn miklu basli og núna, en á sama tíma eru engin fyrirheit um hækkun húsaleigubóta og ekkert fjármagn í nýtt húsnæðiskerfi. Félagsmálaráðherrann sem hefur talað um nýtt kerfi í fimmtán mánuði skammar sveitarfélögin, og brosir sínu fallega brosi. En það gerist ekkert.

Framsókn, sem einu sinni barðist fyrir hlut lítilmagnans, lætur reka á reiðanum, og þingmenn hennar eru tíndir einn af öðrum út undir vegg og barðir til hlýðni. Meira að segja Vigdís Hauksdóttir hefur skipt um skoðun á matarskattinum. Hver hefði trúað því að Framsóknarflokkurinn snerist í lið með þeim sem þannig vilja rýra kjör bænda og tekjulægstu hópanna?

Rangt gefið

Á sama tíma keppist ríkisstjórnin við að lýsa því hvað framtíðin er björt. Hið nöturlega er, að þar hefur hún rétt fyrir sér. Hún tók við þjóðarskútu, sem var búið að koma á kjöl, og spúlun fyrri ríkisstjórnar eftir bankahrunið er sem betur fer að skila góðum árangri fyrir Íslendinga. Í því ljósi er nöturlegt, að 11 milljarðar skuli innheimtir með skattahækkun á mat, heitu vatni, og raforku til heimilanna – til að kosta stórfellda lækkun á gjöldum stórútgerðar og sterkefnaðra!

Það er nöturlegt að þegar þjóðinni gengur vel skuli ekki allir njóta þess.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×