Menning

Umbreytingin í Þjóðleikhúsinu

Að loknum sýningum í Þjóðleikhúsinu leggur Bernd upp í heimsreisu með sýninguna.
Að loknum sýningum í Þjóðleikhúsinu leggur Bernd upp í heimsreisu með sýninguna.
Bernd Ogrodnik brúðulistamaður hefur farið víða um heim með sýningu sína Umbreytingu eftir að hún var sýnd hér á landi við frábærar viðtökur á Listahátíð árið 2006. Nú gefst einstakt tækifæri til að bera þessa sýningu augum en hún verður sýnd næstu þrjár helgar í Þjóðleikhúsinu. Eingöngu verður um þessa þrjá sýningardaga að ræða og því um að gera að bregðast hratt við og tryggja sér miða.

Sýningin sem Bernd býður upp á að þessu sinni er stytt, fjölskylduvæn útgáfa sem er ferðaútgáfa sýningarinnar. Eins og fyrr segir hefur sýningin ferðast víða um lönd og má meðal annars nefna Rússland, Havaí, Ísrael, Þýskaland, Danmörku, Arúba, Kanada og Kóreu. Nú leggur Bernd enn eina ferðina upp í heimsreisu með sýninguna og meðal þeirra landa sem munu njóta að þessu sinni eru Taíland, Indónesía, Egyptaland og Íran.

Bernd mun halda af landi brott í lok október og fyrstu sýningar verða í Þjóðleikhúsi Taílands í Bangkok í byrjun nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×