Menning

Tilraunamennska í tónlist og gjörningum

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Sláturtíð „Verðlaunabikarinn er afsteypa af raunverulegum sláturkepp,“ útskýrir Guðmundur Steinn.
Sláturtíð „Verðlaunabikarinn er afsteypa af raunverulegum sláturkepp,“ útskýrir Guðmundur Steinn. Mynd úr einkasafni
„Fyrstu tónleikarnir eru í kvöld þar sem meðal annars verða flutt ný verk eftir mig og Hafdísi Bjarnadóttur og keppninni um Keppinn verður startað,“ segir Guðmundur Steinn Gunnarsson, einn aðstandenda tónlistarhátíðarinnar Sláturtíðar sem hefst í dag. Það er S.L.Á.T.U.R. – Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík – sem fyrir hátíðinni stendur og hefur hún verið haldin árlega síðan 2009.



Samhliða Sláturtíð í ár fer fram keppnin um Keppinn, sem er að þessu sinni keppni í myndlist með frjálsri aðferð. Keppurinn sjálfur er járnsteyptur farandverðlaunabikar sem veittur verður nú í fjórða sinn. „Verðlaunabikarinn er afsteypa af raunverulegum sláturkepp, sem eru nú að verða ansi sjaldgæfir,“ segir Guðmundur. „Þeir sem vilja taka þátt í keppninni geta mætt með verk klukkan sjö í kvöld. Síðan verða verkin seld hæstbjóðanda og það verk sem selst á hæsta verðinu hlýtur verðlaunin.“



Viðburðir hátíðarinnar eru sambland af tónlist og gjörningum og fara allir fram í Hafnarhúsinu. Í kvöld, annað kvöld og á laugardagskvöldið hefjast þeir klukkan 20 og klukkan 15 á laugardag eru einnig tónleikar þar sem aðeins verður flutt eitt verk sem er óvenjulegt á hátíðinni.



Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík voru stofnuð árið 2005 og hafa staðið fyrir ótal mörgum viðburðum af ýmsum toga sem allir tengjast tilraunamennsku í tónsmíðum á einn eða annan hátt. Á næsta ári munu samtökin halda upp á tíu ára afmælið með veglegum hætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×