
Þar kliða raddir tímans
Við skiptumst ekki í tvær fylkingar, vinstri og hægri, með og á móti, heldur liggja leiðir okkar saman og sundur eftir ótal flóknum leiðum því að fólk er ýmislegt og alls konar og hefur ólíkar raddir inni í sér og kringum sig.
Samfélag og tvístringur
En við eigum samfélag þó að við séum svona ólík. Samfélagsaðildinni fylgja margvíslegar sameiginlegar skyldur og réttindi – og einhvers konar samkennd: við eigum sögu; ljóta, fagra, fyndna, hræðilega, glæsta, auma. Við eigum sameiginlegar sögur og sagnir og alls konar tilvísanir hingað og þangað; við tölum flest þessa tungu, sem er svo sannarlega ein sérviskan í heiminum. Við eigum saman menningarverðmæti.
Sem sé: Við höfum komið okkur saman um ýmsa tilhögun við það að tala saman og leitast við að heyra hvert í öðru. Gefin eru út blöð og reknar útvarpsstöðvar og sjónvarpsstöðvar; við hittumst á Kjaftaklöppinni Facebook og til eru þau sem blogga eins og þau eigi lífið að leysa. Tæknin hefur tilhneigingu til að beina okkur í tilteknar menningarkvíar. Við sækjumst, eðli málsins samkvæmt, fremur eftir því að tengjast þeim sem við teljum okkur eiga samleið með, pólitískt og menningarlega, svo að við getum rætt hugðarefni okkar við skyldar sálir. Það er þægilegt.
En varasamt. Meðal þess sem ógnar samfélaginu nú á dögum, samfélagslegri vitund og hæfileikanum til að setja sig í spor annarra – samlíðaninni sem er forsenda svo margs í siðuðu samfélagi – er tvístringurinn sem netlífinu fylgir. Hólfmennskan. Við sjáum þetta til dæmis þegar fólk sem telur sig í menningarlegri miðju landsins, í miðbæ Reykjavíkur og svo fólk sem telur hjarta landsins slá í brjósti sér og býr utan Reykjavíkur, er að skiptast á skætingi með gagnkvæmu áhugaleysi um að setja sig í spor viðhrópandans.
Á netinu fer maður smám saman bara að heyra þær fréttir sem manni líkar vel að heyra og staðfesta þá hugmyndafræði og sýn sem maður hefur ræktað með sér í sínu hólfi. Maður les bara pistla þess fólks sem orðar af listfengi það sem maður sjálfur vildi sagt hafa. Maður leitar staðfestu og staðfestingar. Þetta er hættulegt. Við þurfum að eiga sameiginlegan vettvang þar sem sagðar eru fréttir, miðlað sögu og menningu, skipst á skoðunum og álitamál brotin til mergjar án fyrirframgefinnar niðurstöðu. Sá vettvangur er til: Ríkisútvarpið.
Sundrungartákn íslensku þjóðarinnar
Ríkisútvarpið býr við linnulausar og samfelldar árásir frá óbilgjörnum öfgasinnum sem keppast við að verða sundrungartákn íslensku þjóðarinnar; ala sífellt á úlfúð og hatri. Þetta eru menn sem eru á launum við að ganga erinda tiltekinna hagsmunaafla í samfélaginu, ýmist á þingi eða á tilteknum fjölmiðlum. Fremstur þar í flokki er Davíð Oddsson sem nú er orðinn hjú hjá LÍÚ.
Engu er líkara en að hann telji sig orðinn sérstakan saksóknara í ímynduðu sakamáli gegn þessari stofnun. Það er honum og áhangendum hans kappsmál að grafa undan því mikla trausti sem Ríkisútvarpið nýtur meðal landsmanna eins og skoðanakannanir hafa þráfaldlega leitt í ljós. Þrátt fyrir átta hundruð Reykjavíkurbréf í Morgunblaðinu, sem verða æ frekjulegri – og skringilegri – þá hafa þau skrif greinilega ekki orðið til annars en að auka traust og tiltrú almennings á Ríkisútvarpinu.
Flestir Sjálfstæðismenn átta sig á því að þjóðin vill hafa þessa stofnun, hvort sem við erum vinstri sinnuð eða hægri sinnuð. Hvar sem við stöndum. Því að þetta er okkar stofnun, sem þjónar almenningi en ekki sérhagsmunum, sinnir þjóðmenningu í víðasta skilningi en ekki stundarmarkaðsvörum, leitar sannleikans en gengur ekki erinda. Ríkisútvarpið er mikilsverður hluti af þeim innviðum íslensks samfélags sem viss öfl vilja veikja. Það ræktar samkennd okkar. Þar kliða raddir sem við myndum jafnvel ekki heyra í annars. Þar heyrum við músík sem enginn sérstakur er að reyna að selja okkur en ástæða er til að halda á lofti. Þar býr þjóðarminnið og bætist við jafnt og þétt; það sem framleitt er núna í Ríkisútvarpinu verður einn góðan veðurdag að ómetanlegum menningarverðmætum.
Í útvarpinu kliða raddir tímans. Verðmæti stofnunarinnar er ekki bara í ómetanlegu segulbanda og myndasafni stofnunarinnar; það er líka í því óáþreifanlega, sögunni, hefðinni, þekkingunni – samfellunni. Ríkisútvarpið er sameign íslensku þjóðarinnar sem vill hafa öflugt almannaútvarp hér á landi þar sem fólk fær að starfa af fagmennsku og heilindum en þarf ekki að búa við stöðugar árásir frá frekjuhundum.
Árásirnar á Ríkisútvarpið jafngilda árásum á Árnastofnun eða Veðurstofuna. Þetta er eins og að vera andvígur Þjóðminjasafninu. Þetta er eins og að berjast fyrir því að Esjan verði lögð niður.
Skoðun

Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna
Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar

Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi!
Rakel Ýr Isaksen skrifar

Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð
Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar

Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar
Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar

Samkeppnin tryggir hag neytenda
Hanna Katrín Friðriksson skrifar

Stóðhryssur ekki moldvörpur
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Við getum gert betur
Einar Bárðarson skrifar

Tími til að notast við réttar tölur
Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar

Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur?
Valur Elli Valsson skrifar

Ábyrg stefna í útlendingamálum
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar

Týndu hermennirnir okkar
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Gerist þetta aftur á morgun?
Ísak Hilmarsson skrifar

Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu?
Helen Ólafsdóttir skrifar

Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar
Jón Daníelsson skrifar

Að reikna veiðigjald af raunverulegum aflaverðmætum
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Fréttir af baggavélum og lömbum
Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Auglýsingaskrum Landsvirkjunar
Stefán Georgsson skrifar

Öryggi og varnir Íslands
Kristrún Frostadóttir,Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Inga Sæland skrifar

Takk Trump!
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Fíllinn á teikniborði Landsvirkjunar
Soffía Sigurðardóttir skrifar

Tími til að staldra við
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Hvar er fyrirsjáanleikinn, forsætisráðherra?
Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar

25 metrar í Fannborg
Hákon Gunnarsson skrifar

Krossferðir - Íslamófóbía - Palestína
Kristján Þór Sigurðsson skrifar

Gefum heimild fyrir kyrrð og kærleik
Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar

Frumvarp til ólaga
Jón Ásgeir Sigurvinsson skrifar

Hervirki í höfuðborg - Svefngenglar við stjórnvölinn
Örn Sigurðsson skrifar

„Drifkraftur að óöryggi og óvissu“
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Klerkaveldi, trú og stjórnmál
Sigurður Árni Þórðarson skrifar