„Matarstellið og glösin fengum við hjónin í brúðkaupsgjöf árið 2010. Þetta er danskt antikstell. Glösin heita Opera og eru úr Tékkkristal. Annar borðbúnaður er úr silfri. Kertastjakann á miðju borðinu fékk ég að láni hjá tengdamóður minni en hann er hægt að skreyta eftir árstíðum og tilvalið að nota greni og reyniber um jól. Silfurbakkann hef ég átt lengi og skreyti hann eftir árstíðum,“ segir Sóldís.
![](https://www.visir.is/i/7803C8ECB822C2D7E03EF08859456567B274E5930E6146B7E562D699EB8BB808_390x0.jpg)
![](https://www.visir.is/i/9428353692B2F927265EC2B5214FBA9874BBA0D7FA35C1C8C3658AC03A89DD23_390x0.jpg)
Jólahald Sóldísar og fjölskyldu er í nokkuð föstum skorðum. „Ég er yfirleitt tilbúin með allt nema matinn á Þorláksmessu því á aðfangadag er hér mikill gestagangur og margir sem banka upp á með pakka. Þá er ég alltaf með brúna lagköku sem tengdamóðir mín bakar á borðum og er hún yfirleitt borðuð upp til agna. Við hlustum svo á jólamessuna og maðurinn minn les jólaguðspjallið upp úr Biblíunni áður en við hefjum borðhaldið. Við borðum svo alltaf rjúpur, hamborgarhrygg og heimalagaðan jarðarberjafrómas og ég get ekki hugsað mér neitt annað,“ segir hún og hlær.
Sóldís hefur rómantískan stíl og hafa fleiri fengið að líta inn til hennar með myndavélar. Eldhúsið hennar er sveipað sveitarómantík og var til dæmis fengið að láni við upptökur á matreiðsluþáttum Eldað með Ebbu með Ebbu Guðnýju Guðmundsdóttur, sem sýndir voru á RÚV fyrr á árinu. „Ég fékk spurnir af því að hún væri að leita að tökustað og sýndist hún vera að leita að einhverju í mínum anda. Ég ákvað því að bjóða mig fram. Ég hefði þó ekki gert það fyrir hvern sem er. Hún er bara svo indæl og svo er ég líka svolítið í þessu lífræna sjálf.“
![](https://www.visir.is/i/51D9E37C1B0C022B8C07F190EEE0DED29F1E1CCA9D3F311279E6677466DBA3AC_713x0.jpg)