Fjölgun í Golf fjölskyldunni Finnur Thorlacius skrifar 8. janúar 2015 14:29 Volkswagen Golf Variant.
Laugardaginn 10. janúar næstkomandi mun Hekla frumsýna nýjan Volkswagen fjölskyldumeðlim, Golf Variant. Golf Variant er hagnýtur skutbíll, með nægu farangursrými og búinn fullkomnum þægindum. Við hönnun Golf Variant var lögð mikil áhersla á að halda hinu vinsæla útliti Golf, en um leið að bjóða bíl sem svarar þörfum þeirra sem þurfa aukið rými. Golf Variant getur annast flesta flutninga fjölskyldunnar með 605 lítra og 180 cm langt rými aftur í þegar sæti eru lögð niður. Golf Variant hefur einnig fjölmarga aðra glæsilega og þægilega kosti. Sportlegar útlínur bílsins eru sérstaklega áberandi og fangar afturendinn svo sannarlega augun. Fyrir þá sem eru alveg komnir með nóg af klaka og móðu á framrúðunni eftir langan og kaldan vetur má benda á að í Golf Variant er hægt að fá upphitaða framrúðu. Einnig er hægt að fá rafstýrða sóllúgu sem er eykur enn á þægindin. Golf Variant er frábær kostur fyrir þá sem vilja njóta glæsileikans í hönnun hins margveðlaunaða Volkswagen Golf, en um leið að njóta þess að aka um á rúmgóðum og öruggum fjölkyldubíl. Miklir aksturseiginleikar, fagurt útlit og hátækni öryggisbúnaður eru aðeins nokkrir kostir sem gera nýjan Golf Variant tilvalinn fyrir fjölskylduna. Opið verður frá 12 til 16 á laugardaginn hjá HEKLU, Laugavegi 170-174.Volkswagen Golf Variant er afar rúmgóður bíll.
Mest lesið Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Innlent Ekki efni til að ákæra þá sem fötluð kona var látin hafa samræði við Innlent Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Innlent Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Erlent Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Innlent Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Erlent Fjarlægðu „óvelkominn aðila“ af öldrunarheimili Innlent Skjálfti upp á 3,4 í morgun á Suðurlandi Innlent Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Erlent Hiti nær 22 stigum fyrir austan Innlent