
Vergne: Betra að vera þróunarökumaður Ferrari en að keppa fyrir lítið lið
Franski ökumaðurinn segist frekar vilja hafa þróunarökumannssæti hjá háttvirtu liði eins og Ferrari en að vera að keppa um síðustu sætin með „Caterham eða Marussia“.
„Ég veit að ég gaf allt sem ég átti og sé þess vegna ekki eftir neinu. Núna er ég hjá Ferrari sem er frábært tækifæri fyrir 2016,“ sagði Vergne.
„Fyrst að ég fékk ekki keppnissæti í ár, held ég að það sé betra að þróunarökumannssætið hér en að vera hjá Caterham eða Marussia og vera alltaf aftastur,“ bætti Vergne við.
Hann var einnig feginn að fá hlutverk þróunarökumanns fram yfir að vera varaökumaður. Þrátt fyrir að það gæti gefið honum smá von um að keppa ef Sebastian Vettel eða Kimi Raikkonen gætu ekki tekið þátt. Esteban Gutierrez er varaökumaður hjá Ferrari núna.
„Í hreinskilni sagt vil ég vera að vinna í ökuherminum og gera eitthvað gagnlegt, frekar en að vera vara. Í dag er hlutverk varaökumanns að vera á brautinni án þess að gera neitt sérstakt. Það væri þreytandi að geta ekki hjálpað liðinu, svo mér þykir mitt hlutverk mikilvægt,“ bætti Vergne við.
Tengdar fréttir

Horner: Slakt gengi 2014 gerir Vettel betri
Liðsstjóri Red Bull, Christian Horner telur að fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel hafi grætt á erfiðleikum liðsins á árinu.

20 Formúlu 1 keppnir 2015
Keppnisdagatal ársins hefur tekið breytingum keppnirnar verða 20 en ekki 21 eins og til stóð. Ekkert verður af Kóreu kappakstrinum.

Raikkonen ætlar ekki að aðlaga sig að bílnum
Kimi Raikkonen segist ekki ætla að breyta akstursstíl sínum til að henta bílnum. Hann vill að Ferrari hanni bíl sem hentar akstursstíl hans.

Alonso er varaskeifa Mercedes
Mercedes myndi leita samninga við Fernando Alonso fyrir tímabilið 2016 ef ekki tekst að semja við núverandi ökumann liðsins og heimsmeistara, Lewis Hamilton.

Ferrari, Red Bull og McLaren vilja frjálsa vélarhönnun
Vilja breyta vélum sínum fyrir næsta tímabil þar sem vél Mercedes hefur yfirburði.

Vélaþróun leyfileg 2015, fyrir suma
Gloppótt reglugerð gerir það að verkum að breytingabannið sem lék Ferrari og Renault grátt í lok síðasta tímabils verður ekki til staðar í ár.

Ég er ekki töframaður
Nýr liðsstjóri Ferrari, Maurizio Arrivabene segist ekki geta gert nein kraftaverk fyrir næsta tímabil og því verði það líklega erfitt fyrir ítalska liðið.