Um tónlist hefur Kristín þetta að segja:
„Mér finnst ég stundum vera ein í þeim hópi fólks sem hefur hvorki tónlistarsmekk né tónlistaráhuga. Að minnsta kosti finnst mér allt of sjaldan rætt opinskátt um að slíkt fólk eigi tilvistarétt á þessari jörðu og nú ríð ég á vaðið og tilkynni að ég, Kristín Tómasdóttir, er tónlistarsmekklaus.
Að því sögðu kemur hér listi yfir lög sem ég hef stundum hlustað á til þess að koma mér í vinnugír eða örlítið betra skap. Annars hlusta ég ekki á tónlist nema að frumkvæði annarra.
Ég reyndi að leyfa Power-ballöðum að njóta sín á listanum en þær einkenna þá gerð tónlIstar sem fellur einna helst í kramið hjá mér.“
The best - Tina Turner
Total Eclipse of the Heart- Bonnie Tyler
Nothing compares to you - Sinead o‘connor
It Must Have Been Love - Roxette
Holding Out for a Hero - Bonnie Tyler
Don‘t stop me now - Queen
Girls Just Want To Have Fun - Cyndi Lauper
Ain‘t No Sunshine - Bill Withers
Bang Bang - Nancy Sinatra
Fuck You- Lily Allen