Veiði

Vorveiði í Soginu getur gefið fína veiði

Karl Lúðvíksson skrifar
Sogið geymir vænar bleikjur.  Þessi er úr Ásgarði
Sogið geymir vænar bleikjur. Þessi er úr Ásgarði Mynd: www.lax-a.is
Núna eru ekki nema tvær vikur í að veiðin fari af stað og vetursetu stangveiðimanna fer þá loksins að ljúka.

Það fer að vísu mikið eftir veðri hversu margir fara í vöðlurnar á vorinn en flestir reyna þó að bleyta færi þó ekki nema aðeins til að koma veiðiskjálftanum frá.  Þeir veiðimenn sem eiga eftir að finna sér eitthvað við hæfi geta farið á sölusíður veiðileyfasala og skoðað hvað er í boði og það er víst af nægu að taka.

Stangaveiðifélag Reykjavíkur á til að mynda daga lausa á sínum vorveiðisvæðum sem eru Steinsmýrarvötn, Varmá og svo tvö svæði í Soginu.  Varmá og Steinsmýrarvötnin hafa löngum verið vel sótt en hann er heldur fámennur hópurinn sem kíkir í Sogið svona heilt yfir sem er óskiljanlegt því þarna er oft hægt að gera fína veiði á vorin.  Ekki nóg með að veiðivonin sé öllu jafna nokkuð góð þá eru veiðimenn að setja í niðurgöngulaxa, sjóbirtinga og svo auðvitað bleikjur en nokkuð algengt var að sjá 4-5 punda bleikjur í fyrravor.  Bíldsfell og Ásgarður, sem nú er hjá Lax-Á, hafa yfirleitt meira sótt en Alviðran þrátt fyrir að Alviðra hafi á árum áður verið alræmd fyrir góða vorveiði en hún er lítið sótt í dag, bæði í vorveiði sem og á besta tíma.  Vanir menn á svæðinu tali um breyttar aðstæður sem geri það að verkum að laxinn sérstaklegafari á hraðferð upp á Bíldsfell og Ásgarð en bleikjan sem heldur sig við Alviðru og Þrastarlund er þarna ennþá og þeir sem þekkja svæðið veiða alltaf nóg á hverju sumri.  Það þarf bara að finna hana.






×