Þrjár íslenskar stúlkur stóðu fyrir sundferð í Laugardalslaugina í kvöld en hvöttu þær alla til að láta sjá sig og flagga fögrum brjóstum.
Sjá einnig: Ætla berbrjósta í Laugardalslaugina og vilja þig með
Þær Hanna María Geirdal, Karen Björt Eyþórsdóttur og Guðbjörgu Ríkey Thoroddsen Hauksdóttur stóðu fyrir viðburðinum.
Sjá einnig: Facebook lokaði á íslenskan #FreeTheNipple viðburð
Nokkur fjöldi kvenna mætti í laugina í kvöld og var stór hluti af þeim berbrjósta. Þegar Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari 365, var á svæðinu voru á annan tug kvenna berbrjósta í lauginni.
Sjá einnig: Berbrjósta konur velkomnar í Laugardalslaugina
Þær stöllur ætla svo aftur í sund á sunnudagskvöldið og hvetja fólk til að skella sér með.
