Ef til verkfalls kemur mun það vera í fyrsta sinn í 65 ára sögu hljómsveitarinnar en tónleikar eru fyrirhugaðir í Hörpunni í kvöld. Takist ekki að semja fyrir þann tíma falla tónleikarnir niður.
Mikil samstaða
„Það bendir því allt til þess að tónleikarnir í kvöld falli niður. Það er mikil samstaða innan hljómsveitarinnar en 96 prósent okkar voru tilbúin til þess að beita verkfallsaðgerðum í atkvæðagreiðslu. Við erum vissulega öll mjög leið, enda þykir okkur mjög vænt um okkar áhorfendur.“
Sinfóníuhljómsveit Íslands var stofnuð 1950 en á síðasta ári sóttu 76.500 manns tónleika hljómsveitarinnar. Samkvæmt nýlegri Gallup könnun hafa 45% fólks á aldrinum 18-34 ára komið á tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar síðustu 2-3 ár og 96,3% tónleikagesta fara ánægð frá þeim.

Margrét segir að þolinmæðin hafi verið komin í þrot og að hljómsveitin búi við vanefndir frá síðasta kjarasamningi frá árinu 2011.
Á heimsmælikvarða
„Við erum búin að æfa mikið og vel fyrir þessa tónleika í kvöld,“ segir Margrét og bætir við að stjórnandi tónleikanna og einleikarinn séu á heimsmælikvarða.
Einleikarinn ku vera Shai Wosner frá Ísrael sem nýtur alþjóðlegrar hylli fyrir listfengi og framúrskarandi túlkun. Hann leikur með öllum helstu hljómsveitum Evrópu og Ameríku og debúteraði með Vínarfílharmóníunni í Salzburg á 250 ára fæðingarafmæli Mozarts.
Stjórnandi í kvöld, ef af tónleikunum verður, er Olari Elts frá Eistlandi sem varð í fyrsta sæti í Alþjóðlegu Sibeliusar-hljómsveitarstjórakeppninni í Helsinki árið 2000. Hann var aðal- hljómsveitarstjóri Lettnesku þjóðarhljómsveitarinnar og aðalgestastjórnandi Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Helsinki og Sinfóníuhljómsveitar Eistlands.
„Við höfum ekki boðað til frekari aðgerða eins og er en erum reiðubúin til þess. Við væntum þess að þegar menn gera sér grein fyrir alvarleika málsins að unnið verði hratt í átt að samkomulagi. Það er ekki okkar vilji að vera í verkfalli, aldeilis ekki,“ segir Margrét að lokum.