Fiat rafmagnsbíll fyrir 11.300 kr. á mánuði Finnur Thorlacius skrifar 7. apríl 2015 15:45 Fiat 500e.
Vegna mikilli ívilnana í Kaliforníu til handa þeim sem kjósa að aka á rafmagnbílum kostar það ekki nema 11.300 krónur á mánuði að leigja Fiat 500e. Það er ekki hár rekstrarkostnaður fyrir bíl og sparnaðurinn í eldsneyti gerir líklega betur en að borga upp þennan lága leigukostnað. En hvers vegna er leiguverðið svona lágt. Jú, það er einfaldlega reiknað út frá kaupverði (32.000 dollarar) að frádregnu hrakvirði (13.100 dollarar) bílsins við leigulok eftir 36 mánuði og dregnar frá þær mýmörgu ívilnanir sem í boði eru í Kaliforníufylki. Þær eru af mörgum toga og samanlagt uppá 13.000 dollara. Því standa aðeins eftir 82,75 dollara á hverjum þeim 36 mánuðum sem leiga bílsins varir. Þetta hafa um 80 aðilar uppgötvað nú þegar og á einni helgi fóru því 80 af 100 Fiat 500e bílum sem voru í boði á þessu verði. Fiat 500e kemst 130 km á hverri hleðslu, svo ef til vill er þessi bíll ekki sá heppilegasti fyrir lengri ferðir, en svo til allir leigjendur bílanna eiga annan bíl með hefðbundinni brunavél.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent