Ökuhermir og þolakstursbíll hjá Toyota um helgina Finnur Thorlacius skrifar 17. apríl 2015 09:42 Ökuhermirinn er inní þessum Toyota GT86 bíl og hann stendur á vökvalyftum sem herma eftir réttum hreyfingum við aksturinn.
Í ár fagnar Toyota á Íslandi því að 50 ár eru liðin frá því fyrsti Toyotabíllinn var seldur á Íslandi. Næsti stórviðburður í tilefni afmælisins verður um helgina er viðurkenndir söluaðilar Toyota á Akureyri, Selfossi, í Reykjanesbæ og Kauptúni í Garðabæ bjóða til sýningar laugardaginn 18. apríl. Sýningin verður opin frá kl. 12 – 16. Á sýningunni verða fjölmörg afmælistilboð Toyota kynnt auk þess sem ný leið við bílakaup, Toyota FLEX verður boðin í fyrsta sinn. Toyota FLEX er ný og þægileg leið til að fá sér bíl með 24 eða 36 mánaða samningi, lágri útborgun (frá 10%) og fjölbreyttum valkostum við enda samningstímans. Hjá Toyota Kauptúni stendur sýningin í tvo daga, laugardag og sunnudag frá kl. 12 - 16. Þar verður fullkominn ökuhermir þar sem gestir geta sest undir stýri á GT86 sportbílnum og sýnt kunnáttu sína og ökuleikni. Hermirinn er búinn sömu stjórntækjum og raunverulegur GT86 og stendur á vökvadælum sem líkja eftir hreyfingum bílsins í brautinni. THX Surround hljóðkerfi sér síðan til þess að upplifunin af hljóðinu í bílnum verður mjög raunveruleg. Einnig verður á sýningunni hjá Toyota Kauptúni kappakstursbíllinn TS030 HYBRID sem hefur m.a. tekið þátt í Le Mans þolaksturskeppninni. Þessi Toyota TS030 HYBRID þolakstursbíll stendur nú á gólfinu í Toyota Kauptúni. Hann er raunverulegur keppnisbíll Toyota og hefur tekið þátt í þolakstrinum í Le Mans.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent