Hamilton: Allt í góðu á milli okkar Nico

Í kappakstrinum í Kína síðustu helgi fannst Nico Rosberg að Hamilton væri vísvitandi að gera sér lífið erfitt. Hamilton ók með það fyrir augum að lágmarka dekkjaslit. Á meðan var Sebastian Vettel sem varð þriðji að nálgast Rosberg hratt í öðru sæti.
Hamilton sagði strax eftir keppnina að ef Rosberg hefði viljað komast fram úr hefði hann bara átt að taka fram úr.
Hamilton var spurður út í skoðun sína á málinu og hver staðan á milli þeirra væri.
„Þetta er eitthvað sem við ræddum eftir keppnina. Ég hef ekki sérstakan áhuga á að fara nánar út í það. Augljóslega heyrðu allir athugasemdirnar eftir keppnina og einhverjir hafa snúið út úr þeim eins og þeim hentar,“ sagði Hamilton á blaðamannafundi.
„Við komum aftur saman sem lið um helgina og viljum gera okkar besta. Það er allt í góðu á milli okkar Nico, við hittumst í morgun og það er allt í góðu,“ bætti Hamilton við.
Aðspurður hvaða áhrif síðasti sunnudagur myndi hafa á hans nálgun til keppna tímabilsins sagði Hamilton.
„Ég læt niðurstöðurnar á brautinni tala, þannig hefur það verið síðan ég var 8 ára. Auðvitað reyni ég að læra af ákvörðunum mínum og reynslu og vona að ég verði betri. Maður verður að gera sitt besta.“
Tengdar fréttir

Hamilton hraðastur í dag
Lewis Hamilton var hraðastur á báðum æfingum dagsins fyrir kínverska kappaksturinn sem fram fer á Sjanghæ brautinni um helgina.

Hamilton á ráspól í Kína
Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól, Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel varð þriðji.

Bílskúrinn: Sögur af Sjanghæ
Lewis Hamilton snéri aftur á efsta þrep verðlaunapalsins í Kína. Fast á hæla hans fylgdi pirraður liðsfélagi hans, Nico Rosberg. Allt er þá orðið eðlilegt aftur í Formúlu 1.

Rosberg: Vettel getur hjálpað mér að verða meistari
Nico Rosberg trúir því að Sebastian Vettel geti átt stóran þátt í að aðstoða hann í að vinna heimsmeistaratitil ökumanna með því að ræna stigum af Lewis Hamilton.

Rosberg: Lewis ók fáránlega hægt
Hver sagði hvað eftir keppnina í Kína? Lewis Hamilton vann. Þetta var keppni liðsfélaga enda vann Mercedes og Ferrari var þar rétt á eftir og svo kom Williams.

Lewis Hamilton kóngurinn í Kína
Lewis Hamilton var afar sannfærandi í Mercedes bílnum í dag og það virtist enginn geta ógnað honum af neinni alvöru. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.

Vettel: Það kom á óvart hversu fljótir Mercedes voru í dag
Hver sagði hvað eftir tímatökuna í Kína? Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól í fimmta skipti.