Íslenski boltinn

Sjáðu nýju byrjunarliðsgrafíkina sem notuð verður í sumar

Glæsileg ný grafík til að kynna byrjunarliðin verður notuð í beinum útsendingum Stöð 2 Sport í sumar.

Fyrstu umferð Pepsi-deildar karla er enn ólokið þar sem viðureign Fylkis og Breiðabliks var frestað þar til á fimmtudaginn.

Stöð 2 Sport er búið að sýna tvo leiki í beinni útsendingu; fyrst viðureign nýliða ÍA og Íslandsmeistara Stjörnunnar, og svo stórveldaslag KR og FH í gærkvöldi.

Þeir sem fylgdust með útsendingunum sáu nýja grafík sem Stöð 2 Sport hefur búið til þegar byrjunarliðin eru kynnt.

Þetta er eitthvað sem unnendur enska boltans hafa kynnst, en þá ganga „lifandi“ leikmenn að skjánum áður en þeir falla aftur í sínar stöður.

Hér að ofan má sjá hvernig byrjunarlið KR og FH voru kynnt til leiks, en þetta verður notað í hálftíma löngum upphitunum Stöðvar 2 Sports í beinum útsendingum í sumar og einnig í Pepsi-mörkunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×