Íslenski boltinn

Skúli Jón: Maður fær eitthvað auka með KR geninu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
„Mér líst mjög vel á þetta. Það er búinn að vera stígandi í þessu og síðan ég kom í febrúar hefur bæst í hópinn. Maður finnur mun á liðinu með hverri viku og nú er þetta orðið mjög flott.“

Þetta segir Skúli Jón Friðgeirsson, miðvörður KR, við Vísi, en Fréttablaðið og Vísir spáir bikarmeisturunum öðru sæti á eftir FH í Pepsi-deildinni.

KR-liðið byrjaði undirbúningstímabilið ekki vel en leikur þess hefur verið að skána.

„Það er kominn fínn taktur í þetta. Við þurfum kannski að vera beinskeittari, en rólegri á síðasta þriðjungnum. Varnarleikurinn var almennt var góður og spilið fínt þannig þetta var eins og það á að vera viku fyrir mót,“ sagði Skúli Jón um leikinn gegn Stjörnunni í Meistarakeppni KSÍ.

„Það segir sitt að við misstum fullt af mönnum og fengum marga nýja. Það eru líka komnir nýir þjálfarar. Auðvitað er erfitt að ætla byrja frábærlega með nýjan mannskap. Liðið þarf tíma en ég er alveg tilbúinn að tapa í febrúar ef við vinnum í júlí.“

Bjarni Guðjónsson er tekinn við KR og Guðmundur Benediktsson honum til aðstoðar, en báðir eru miklir KR-ingar. Hvorugir hafa þó mikla reynslu sem aðalþjálfarar.

„Það skiptir máli fyrir KR og fyrir félagið að vera með KR-inga innanborðs. Klárlega hjálpar það til þegar þjálfararnir eru grjótharðir KR-ingar. Það er eitthvað auka sem menn eru með, en það er erfitt að útskýra það. Það er eitthvað KR gen sem menn fá í uppvextinum og það gefur eitthvað auka,“ segir Skúli Jón.

Miðvörðurinn er að snúa aftur úr atvinnumennsku og kveðst spenntur fyrir deildinni sem hann segir betri en hann mundi.

„Það eru meiri gæði en mann minnti. Manni hættir til að vanmeta deildina. Þegar maður var úti heyrði maður umtalið og það líta allir niður á Íslendinga þannig þó ég hafi spilað í þessari deild í sjö ár þá var ég samt á því að gæðin væru ekkert sérstök,“ segir Skúli Jón.

„Síðan kemur maður til baka og sér bara hörku leikmenn og liðin sækja aðra hörku leikmenn í efstu deildir Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar. Þetta er alvöru deild þannig það er ekkert að því að koma hingað heim,“ segir Skúli Jón Friðgeirsson.

Viðtal: Tómas Þór Þórðarson

Upptaka og klipping: Garðar Örn Arnarson


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×