Íslenski boltinn

HK og Grindavík kláruðu sín verkefni

Leikmenn HK fagna.
Leikmenn HK fagna. vísir/daníel
Það fóru fram nokkrir leikur í bikarkeppnum KSÍ, Borgunarbikarnum, í kvöld. Þetta voru leikir í 2. umferð.

Það var Suðurnesjaslagur þegar Þróttur Vogum sótti Grindavík heim. Grindjánar þurftu að hafa fyrir hlutunum en unnu að lokum 1-0 sigur.

Óli Baldur Bjarnason skoraði eina mark leiksins fyrir Grindavík á 82. mínútu.

HK gekk illa að hrista af sér lið KH á Hlíðarenda en það kom að lokum. Guðmundur Atli Steinþórsson skoraði eina mark fyrri hálfleiks en tvö mörk frá Guðmundi Magnússyni í seinni hálfleik innsigluðu 3-0 sigur HK.

Borgunarbikar karla:

Ægir-KV   0-3

Grindavík-Þróttur V.  1-0

KH-HK  3-0

KFG-Árborg  2-1

Borgunarbikar kvenna:

Augnablik-Álftanes  2-0

HK/Víkingur-FH   2-1

Fjölnir-ÍA  0-1

Hluti úrslita fenginn frá urslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×