Íslenski boltinn

Stjörnumenn biðjast afsökunar: Bjóðum Leiknismenn velkomna í Garðabæinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Meistararnir báðust afsökunar.
Meistararnir báðust afsökunar. vísir/valli
Stjarnan hefur beðist afsökunar á vopnaleitargríninu sem það hafði um Leiknismenn á opinberri Twitter-síðu sinni í dag.

„Allt klárt fyrir fyrsta heimaleik. Tók þónokkurn tíma að setja upp aukabúnaðinn vegna komu Ghettoliðsins,“ sagði í tísti frá Stjörnunni.

Því fylgdi mynd af vopnaleitarhliði sem Breiðhyltingum fannst ekkert sérstaklega sniðugt.

Magnús Guðmundsson, einn dyggasti stuðningsmaður Leiknis, svaraði Stjörnunni á Twitter og sagði: „Snobbhænsnin í Garðabæ strax byrjuð með ósmekklega brandara,“ og bætti við kassmerkjunum ófaglegt og barnalegt.

Stjarnan hefur beðist afsökunar á Twitter þar sem félagið segir þetta ekki hafa verið illa meint.

„Bara smá brandari byggður á Ghetto-gríninu. Biðjum þá sem móðguðust afsökunnar,“ skrifa Stjörnumenn.

„Upprunaleg færsla endurspeglar engan veginn það hugarfar sem Stjarnan hefur í gaðr mótherja sinna. Við bjóðum Leiknismenn og þeirra flottu stuðningsmenn velkomna í Garðabæinn,“ segir Almar Guðmundsson, formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar, við Vísi.

Leiknisljónin, stuðningsmannahópur Leiknisliðsins, tekur afsökun Stjörnumanna góða og gilda.

„Við hlóum af okkur skottið þegar við sáum þetta,“ segja ljónin á Twitter-síðu sinni.

Leikur liðanna hefst á Samsung-vellinum klukkan 19.15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×