Íslenski boltinn

Jóhann Laxdal lét flúra Stjörnumerkið á sig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jóhann er enn á sjúkralistanum hjá Stjörnunni.
Jóhann er enn á sjúkralistanum hjá Stjörnunni. vísir/arnþór
Jóhann Laxdal, leikmaður Stjörnunnar í Pepsi-deild karla, birti í dag mynd á Twitter af nýju húðflúri sem hann fékk sér.

Jóhann, sem er þriðji leikjahæsti leikmaður Stjörnunnar í efstu deild, lét flúra Stjörnumerkið á handlegg sinn auk þes sem textinn: „Frá Stjörnunni ég aldrei vík / sú tilfinning er engri lík“ fylgdi með.

Þessar línur úr einu af þekktari lögum Silfurskeiðarinnar, stuðningsmannasveitar Stjörnunnar.

Húðflúrið vakti eðlilega mikla lukku meðal Stjörnumanna eins og sjá má á viðbrögðunum sem Jóhann fékk á Twitter.

Það vakti þó athygli sumra að „Stjörnunni“ skyldi vera með litlu s-i en Jóhann segir það eiga sér sínar skýringar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×