Veiði

Hlíðarvatn komið í gang og fiskurinn er í hörkutöku

Karl Lúðvíksson skrifar
Frábær dagsveiði í Hlíðarvatni
Frábær dagsveiði í Hlíðarvatni Mynd: Kristinn Helgi Sveinsson
Það hefur aðeins vantað uppá að vötnin í nágrenni Reykjavíkur fari í gang en biðin eftir því er sannarlega búin.

Í fyrradag voru veiðimenn sem voru við t.d. Elliðavatn, Vífilstaðavatn, Hlíðarvatn og vötnin í Svínadal áþreifanlega varir við að líf var að kvikna í vötnunum.  Í Hlíðarvatni var veiðin t.d. mjög fín og líklega er vatnið komið í fullan gang því mikið var af flugu og greinilega mikið klak á flugu en það sást vel í uppítökum hjá bleikjunni.  Veðrið var líka einstaklega gott með sólskini og smá golu.  Kristinn Helgi Sveinsson var við veiðar í vatninu á þessum tíma samkvæmt veiðisöluvefnum Veiða.is, skrapp í um 3 tíma og náði 20 fínum bleikjum. Þær voru á bilinu 0,5-2 pund. Allar tóku þær Pheasant tail.  Einhverjir lausir dagar eru framundan í Hliðarvatni og þá má finna á vefnum hjá Veiða.is

Veður spáin fyrir morgundaginn er sérstaklega góð í veiðilegu tilliti og má benda veiðimönnum á að kíkja t.d. í Elliðavatn, Hlíðarvatn, Vífilstaðavatn, vötnin í Svínadal, Gíslholtsvatn, Meðalfellsvatn, Þingvallavatn og svo má ekki gleyma Úlfljótsvatni en veiðin þar gæti verið komin í gang en bleikjan þar er oft mun fyrr á ferðinni heldur en í Þingvallavatni.










×