Íslenski boltinn

Atli Sigurjóns til Breiðabliks

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Atli og Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, handsala samninginn.
Atli og Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, handsala samninginn. mynd/blikar.is
Miðjumaðurinn Atli Sigurjónsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Þetta kemur fram á stuðningsmannasíðu Breiðabliks, Blikar.is.

Atli, sem er 23 ára, kemur til Breiðabliks frá KR þar sem hann hefur verið frá árinu 2011.

Atli, sem er uppalinn Þórsari, kom ekkert við sögu í fyrstu tveimur leikjum KR á tímabilinu en ljóst er að hann mun styrkja lið Breiðabliks mikið.

Atli gæti leikið sinn fyrsta leik með Breiðabliki þegar liðið sækir Keflavík heim á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×