Hvað voru liðsmenn Mercedes að hugsa, hvað var Lewis Hamilton að hugsa, af hverju hleypti Daniel Ricciardo liðsfélaga sínum fram úr á síðasta hring og hvernig fór Rosberg að því að vinna þriðja Mónakó kappaksturinn í röð? Allt þetta og meira til í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

Öryggisbíllinn kom út eftir að Max Verstappen á Toro Rosso keyrði aftan á Romain Grosjean á Lotus og endaði á varnarvegg.
Viðbrögð Mercedes liðsins voru að taka forystu manninn af kappakstursbrautinni og inn á þjónustusvæðið til að skipta um dekk. Eftir á sögðust þeir vera að búa sig undir að Ferrari gæti viljað skipta um dekk á bíl Vettel sem þá var þriðji.
Ferrari nýtti ekki öryggisbílinn til að taka þjónustuhlé og Rosberg, liðsfélagi Hamilton gerði það ekki heldur. Rosberg og Vettel voru á undan Hamilton þegar sá síðastnefndi kom út á brautina aftur.
Fullkomlega órökrétt ákvörðun hjá Mercedes og Hamilton. Fyrst brást Mercedes við með því að biðja Hamilton afsökunar. Nú er þó komið í ljós að miklar samræður áttu sér stað yfir talstöðina og Hamilton átti þátt í að taka endanlega ákvörðun um að þjónustuhléið færi fram.
Rosberg var hógvær eftir keppnina og sagðist vissulega glaður en benti á að Hamilton hefði átt skilið að vinna líka. Þjónustuhléið sem Hamilton tók er klárlega klúður tímabilsins hingað til. Þetta hefur verið hið vandræðalegasta mál fyrir Mercedes. Verkfræðingar liðsins verða væntanlega með martraðir næstu vikuna.

Ricciardo var einn af fáum sem tók þjónustuhlé þegar öryggisbíllinn kom út á brautina. Hann var því á ferskum dekkjum undir lokin. Hann fékk að taka fram úr liðsfélaga sínum á full auðveldan máta.
Ricciardo var þá hleypt áfram til að reyna að komast fram úr Hamilton og jafnvel stríða Vettel og Rosberg á griplitlum dekkjum í efstu sætum keppninnar. Hamilton var þó ekki beint á þeim buxunum að missa þriðja sætið líka úr hendi og Ricciardo komst ekki fram úr.
Það kom þá í ljós undir lok siðasta hrings að Daniil Kvyat hafði hreinlega hleypt Ricciardo fram úr. Slíkt hafði hann gert með þeim skilyrðum að ef Ricciardo yrði ekki ágengt í að taka fram úr neinum fleirum. Raunin varð sú að Ricciardo hleypti Kvyat fram úr á síðustu metrunum og allir kátir.
Christian Horner, liðsstjóri Red Bull sagði að þetta hefði verið gert til að gefa Ricciardo tækifæri til að komast á verðlaunapall. Hann hafði ekki geta nýtt sér það og því heiðrað samkomulagið sem gert hafði verið. Horner sagði að allir væru sáttir og að þetta hefði allt verið gert til að reyna að ná sem bestri niðurstöðu fyrir liðið. Kvyat var á mjög lélegu dekkjum þegar þarna var komið við sögu.

McLaren-Honda er goðsagnakennd blanda í Formúlu 1. Aðdáendur ættu þá að hætta að halda niður í bið eftir því að liðið vinni keppni.
Jenson Button annar ökumanna liðsins náði fyrstu stigum þess í ár í keppninni um helgina. Það má því segja að liðið sé loks mætt til leiks í keppni bílasmiða og ökumanna.
Fernando Alonso átti þó ekki góða helgi. Gírkassinn í bíl hans gaf sig í keppninni eftir að vélarrafallinn í bílnum hafði þegar gefið sig í tímatökunni. Erfið helgi fyrir Spánverjann.

Max Verstappen tók tappann úr stíflunni sem olli öllum glundroðanum. Hann hafði átt nokkra snilldar fram úr akstra. Hann elti hraðari ökumenn sem voru að hringa þá sem Verstappen var að keppa við. Hann hélt sig nærri hraðari ökumönnum og fylgdi þeim í gegnum blá flögg og tók þannig fram úr keppinautum sínum.
Verstappen var að reyna að taka fram úr Grosjean í fyrstu beygjunni en Grosjean var á lélegum, slitnum dekkjum og bremsaði fyrr en Verstappen gerði ráð fyrir og þeir lentu saman. Verstappen braut framfjöðrun á bíl sínum og þaut stjórnlaust áfram og endaði á varnarvegg.
Það munaði ekki miklu að Verstappen tækist að taka fram úr Grosjean. Hann hefði svo auðveldlega orðið maður helgarinnar með þessum fram úr akstri.
Verstappen er orðinn næstum því maður tímabilsins. Hann hefur átt einstaka spretti á tímabilinu. Hins vegar hefur hann einungis lokið keppni í tveimur af sex keppnum, sem er ekki góð byrjun hjá nýliðanum.

Williams var annað besta liðið undir lok síðasta tímabils. 2015 hefur ekki byrjað eins vel fyrir Williams. Hvorugur ökumaður liðsins hefur komist á verðlaunapall á árinu. Fjórða sætið er það besta sem þeir hafa náð í ár.
Þrátt fyrir slaka byrjun verður Mónakó að teljast í sérflokki slakra keppna. 14. og 15. sætið voru hlutskipti Valtteri Bottas og Felipe Massa um helgina. Líklega má finna skýringu á slökum árangri í Mónakó.
Bíll Williams liðsins er hannaður til að ná miklum hámarkshraða og halda góðum meðalhraða í hröðum og meðal hröðum beygjum. Mónakó hefur nánast engar meðalhraðar beygjur. Brautin og bíllinn eiga því enga samleið.