Rosberg fékk fyrsta sætið á silfurfati þegar öryggisbíllinn kom út og Lewis Hamilton tók þjónustuhlé. Mercedes hefur viðurkennt að um mistök hafi verið að ræða. Hvað kom fyrir og hver sagði hvað eftir keppnina?
„Ég veit ég var heppinn í dag, Lewis var mjög óheppinn. Ég ætla að njóta þessa til hins ítrasta,“ sagði Rosberg á verðlaunapallinum.
„Svona kemur fyrir, stundum eru íþróttir svona, ég hef aldrei verið eins heppinn á ferlinum og í dag. Lewis ók óaðfinnanlega alla helgina hann hefði átt skilið að vinna. Ég hef mikla samúð með honum en ég vil líka fagna,“ bætti Rosberg við.
„Ég er sáttur, hlutirnir snérust við í lokinn en ég er kátur,“ sagði Sebastian Vettel.
„Þetta var ekki auðveldasta keppni sem ég hef ekið. Liðið hefur staðið sig gríðarlega vel en við vinnum saman og töpum saman. Ég mun koma aftur og vinna hér á næsta ári. Ég get ekki lýst hvernig mér líður núna. Ég sá ekki þá sem voru fyrir aftan mig og hélt að þeir hefðu stoppað. Þeir höfðu í raun ekki gert það. Ég hef fengið afsökunarbeiðni frá liðinu og það dugar mér. Ég vil leiða liðið og þetta er hluti af því. Ég þarf að haga mér eins og heimsmeistari,“ sagði dapur Hamilton.
„Við misreiknuðum þjónustuhléið og eina sem við getum gert er að biðjast afsökunar aftur og aftur og aftur. Við héldum að við gætum náð þjónustuhléi. Við misreiknuðum okkur um þrjár og hálfa sekúndu,“ sagði Toto Wolff, keppnisstjóri Mercedes.

„Þetta var góður dagur ég hef aldrei endað ofar í Formúlu 1 svo það er gott. Mér er létt. Þetta var góð helgi,“ sagði Daniil Kvyat sem endaði fjórði.
„Það var gaman að reyna að keppa síðustu hringina og taka fram úr Kimi (Raikkonen). Við snertumst aðeins en gátum báðir haldið áfram svo það er ekkert athugavert við þetta atvik,“ sagði Ricciardo.
„Ég er aðeins stífur en hef það ágætt. Ég gat komist út úr bílnum hratt. Bíllinn fyrir framan bremsaði óvenju snemma í það skipti sem áreksturinn varð. Við vorum á góðu róli þangað til óhappið varð,“ sagði Max Verstappen sem olli atvikinu sem kom allri atburðarásinni af stað hjá Mercedes.
„Þetta var afar góður dagur fyrir okkur. Við erum ekkert að fara klappa okkur alltof mikið á bakið fyrir áttunda sæti en stig eru alltaf góð,“ sagði Jenson Button.