Aron Snær Júlíusson, GKG, og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR; eru efst í karla- og kvennaflokki eftir fyrstu tvær umferðirnar í fyrsta móti tímabilsins á Eimskiptsmótaröðinni sem ber nafnið Egils Gull mótið. Leikið er á Hólmsveri í Leiru hjá Golfklúbbi Suðurnesja.
Töluverður vindur var í Leirunni í dag, en það hafði veruleg áhrif á skor keppenda. Völlurinn kemur mjög vel undan erfiðum vetri, en flatirnar voru mjög góðar við árstíða sögðu keppendur er fram kemur á golf.is.
Aron Snær, sem er efstur keppenda í karlaflokknum, lék frábærlega á síðari hringnum í dag, en þar lék hann á tveimur undir pari. Hnan er með eins höggs forskot á Andra Þór, en Kristján Þór Einarsson, Axel Bóasson og Gísli Sveinbergsson koma í humátt.
Staðan í karlaflokki:
1. Aron Snær Júlíusson, GKG 144 högg par 74-70
2. Andri Þór Björnsson GR 146 högg (+2) 75-71
3. Kristján Þór Einarsson, GM 147 högg (+3) 73-74
4. Axel Bóasson, GK 150 högg (+6) 76-74
5. Gísli Sveinbergsson, GK 150 högg (+6) 75-75
Ragnhildur Kristinsdóttir er með þriggja högga forskot kvennamegin, en Tinna Jóhannsdóttir kemur næst. Sunna Víðisdóttir er í þriðja sætinu, þremur höggum á eftir Tinnu og fimm á eftir Ragnhildi.
Staðan í kvennaflokki:
1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 155 högg (+11) 76-79
2. Tinna Jóhannsdóttir, GK 158 högg (+14) 76-82
3. Sunna Víðisdóttir, GR 160 högg (+16) 80-80
4. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 161 högg (+17) 79-82
5. Þórdís Geirsdóttir, GK 162 högg (+18) 81-81
6. Karen Guðnadóttir, GS 162 högg (+18) 81-81
Lokaumferðin fer svo fram á morgun sunnudag, en Vísir mun fylgjast með gangi mála.
