Íslenska kvennalandsliðið í golfi vann liðakeppnina á Smáþjóðaleikunum í dag, en Ísland vann með 33 högga mun. Guðrún Brá Björgvinsdóttir sigraði einstaklingskeppnina.
Ísland endaði á samtals 584 höggum, Mónakó í því öðru á 617, Lúxemborg í því þriðja á 677 höggum og Lichtenstein endaði á botninum með samtals 686 högg.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir endaði efst í einstaklingskeppninni, en Mónakó-búinn Sophie Sandolo lenti í öðru. Karen Guðnadóttir var í þriðja og Sunna Víðisdóttir fjórða.
Lokaniðurstöðuna í einstaklingskeppninni má sjá hér að neðan sem og lokastaðan í liðakeppninni.
Lokastaðan í liðakeppninni:
1. Ísland 584 högg
2. Mónakó 617 högg
3. Lúxemborg 677 högg
4. Lichtenstein 686 högg
Lokastaðan í einstaklingskeppninni:
Guðrún Brá Björgvinsdóttr, Ísland 287 högg -1 (69-71-70-77)
Sophie Sandolo, Mónakó 292 högg +4 (73-73-70-76)
Karen Guðnadóttir, Ísland 302 höggg +14 (77-73-75-77)
Sunna Víðisdóttir, Ísland 303 högg +15 (74-78-76-75)
Maria Creus Ribas, Andorra 323 högg +35 (77-88-81-77)
Sophie Halshall, Mónakó 331 högg (80-85-86-80)
Christine Tinner Rampone, Liechtenstein 333 högg (88-83-79-83)
Ísland fékk tvenn gullverðlaun í golfi
Anton Ingi Leifsson skrifar

Mest lesið


Þriggja ára reglan heyrir sögunni til
Körfubolti


Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann
Handbolti




Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning
Körfubolti

