Veiði

Verðlaunaflugur Veiðimannsins 2015

Karl Lúðvíksson skrifar
Flugan Krauni
Flugan Krauni
Veiðimaðurinn fagnar 75 ára afmæli á árinu og því efndi málgagn stangveiðimanna til samkeppni um laxaflugu Veiðimannsins 2015 og silungaflugu Veiðimannsins 2015.

Fræðslunefnd SVFR ásamt Sigurði Pálssyni, stórveiðimanni og fluguhnýtara, tók innsendar flugur til kostanna og kvað upp sinn dóm. Veiðimaðurinn gat ekki annað en bætt við einu leynivopni í safnið og óskar veiðimönnum til hamingju með þrjár nýjar flugur sem þeir geta notað í sumar til að egna fyrir lax, bleikju, sjóbirting og urriða. Við tökum forskot á sæluna og birtum myndir af flugunum hér ásamt stuttri lýsingu en Veiðimaðurinn fer í dreifingu til félagsmanna og í verslanir í vikunni.

Laxafluga Veiðimannsins 2015: Krauni

Höfundur Nökkvi Svavarsson.

„Mér var hugsað um Aðaldalinn, Nes-svæðið og þessir litir kölluðu á mig. Man eiginlega ekki eftir neinni laxaflugu í koparlit og fannst þessi samsetning smellpassa fyrir haustið í Aðaldal.

Silungafluga Veiðimannsins 2015:Skotta



Höfundur Hafþór Róbertsson

„Tildrög þessarar flugu eru þær að ég hef í rúman áratug veitt í Litluá í Kelduhverfi seint á haustin. Þegar sá tími er kominn eru hornsílin í ánni þar í stórum flokkum og maður leitast við að nota flugur sem líkjast þeim á einhvern máta. Þessi hugmynd af flugunni er því komin þaðan. Ég kalla fluguna Skottu, vegna þessa langa skotts sem hún er með. Hún er bæði fyrir þann brúna (staðbundna) og sjóbirtingin sem er að ganga á fullu á þessum tíma“.

Leynivopn Veiðimannsins 2015: Blóðörn

Höfundur Ingólfur Örn Björgvinsson

„Þessi fluga hefur verið að þróast hægt og rólega síðustu fimm ár. Hún byrjaði sem öflug Þingvallapúpa en það var ekki fyrr en síðasta sumar sem hún vann sér varanlegan sess í fluguboxi höfundar. Gaf hún bleikju í hverri Þingvallaferð og oft margar frá maí og fram í ágúst í stærðunum 12-14. Einnig aflaði hún mjög vel á Skagaheiði og í Veiðivötnum nýliðað sumar. Þótt púpan sé hugsuð fyrir vatnaveiði hefur hún einnig gefið vel í straumvatni, bæði bleikju og urriða. Nafnið varð til þegar einn veiðifélaganna sá púpuna í fyrsta sinn og hafði á orði að það væri eins og rist hefði verið á bak hennar. Í fornsögunum er lýst mannfórnum þar sem skorið var í bak manna og því flett upp. Var það kallað að rista mönnum blóðörn. Út varð að nafnið festist við púpuna.“

 





×